Dagskrá um aðventu og jól
Mikið og margt er um að vera í Ástjarnarkirkju um aðventu og jól. Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin og hlökkum til að eiga gefandi samfélag um hátíðarnar. Guð gefi ykkur hugvekjandi aðventu og gleðiríka jólahátíð! 4. desember kl. 17 Aðventuguðsþjónusta. Gaflarakórinn syngur undir stjórn Kristjönu Þórdísar Ásgeirsdóttur. 11. desember kl. 17 Óskajólalagamessa. 18. desember
Sigurður Guðmundsson á kertaljósakvöldi
Kertaljósakvöld með tónlistarmanninum Sigurði Guðmundssyni var haldið í Ástjarnarkirkju á dögunum. Sigurður er landsmönnum að góðu kunnur fyrir fágaðan söng og músíkalskt hjarta. Sigurður er jólaröddin. Það sýndi sig líka að húsfyllir var í kirkjunni og viðstaddir nutu stundarinnar. Prestar kirkjunnar voru með svolítið spjall inn á milli laga og Inga kirkjuvörður með heitt
Ný sálmabók tekin í notkun
Ný sálmabók þjóðkirkjunnar var tekin í notkun við guðsþjónustu 1. sunnudag í aðventu. Margrét Bóasdóttir söngmálastýra þjóðkirkjunnar ávarpaði söfnuðinn við það tækifæri. Kammerkvartettinn söng úr nýju sálmabókinni undir stjórn Erlu Rutar Káradóttur organista. Tvær fermingarstúlkur tendruðu ljós á spádómskertinu, fyrsta kertinu á aðventukransinum. Sálmabók hefur ekki verið gefin út í hálfa öld fyrir utan
Sr. Kjartan kvaddi söfnuðinn
Sr. Kjartan Jónsson kvaddi söfnuði Tjarnaprestakalls (Ástjarnarsókn og Kálfatjarnarsókn) við guðsþjónustu á sunnudaginn var 13. nóvember eftir dygga og trúfasta þjónustu sem sóknarprestur. Kjartan hefur látið af störfum sökum aldurs og nú eru þeir þjónandi við prestakallið sr. Arnór Bjarki Blomsterberg (Nói) sóknarprestur og sr. Bolli Pétur Bollason prestur. Við guðsþjónustuna söng kvartett frá
Fjölskylduguðsþjónusta 20. nóvember
Fjölskylduguðsþjónusta verður 20. nóvember kl. 17:00 í Ástjarnarkirkju. Barbörukórinn undir stjórn Kára Þormar organista syngur. Sr. Bolli Pétur Bollason leiðir stund. Heit kvöldmáltíð í boði að lokinni guðsþjónustu. Sagan um Meyjarnar tíu til umfjöllunar (Matteusarguðspjall 25. kafli) sem minnir okkur sannarlega á árvekni og þrautsegju. Verið öll hjartanlega velkomin!
Gróskumikið starf eldri borgara
Mikil gróska er í starfi eldri borgara í Ástjarnarkirkju. Veglegur og vinalegur hópur mætir vikulega í kirkjuna á miðvikudögum kl. 13:30-15:30. Um er að ræða fremur sjálfbært samfélag sem sýpur m.a. á svartbaunaseyði og borðar bakkelsi sem bæði Inga kirkjuvörður útvegar og leggur á borð og jafnframt þátttakendur sjálfir. Umræður snúast einkum um landsins







