Aðalsafnaðarfundur 2025
Aðalsafnaðarfundur Þriðjudaginn 6. maí 2025, klukkan 17:15 Ástjarnarkirkjum, Kirkjuvöllum 1 Allt safnaðarfólk velkomið á fundinn Dagskrá Venuleg aðalfundarstörf Sóknarnefnd Ástjarnarkirkju
Föndurmessa 16. mars klukkan 17:00
Föndurmessa verður í Ástjarnarkirkju sunnudaginn 16. mars klukkan 17:00. Krakkar úr söngstarfi Ástjarnarkirkju syngja og að venju verður boðið upp á heitan kvöldmat þegar messu lýkur. Verið hjartanlega velkomin.
Skráning í fermingarfræðslu og fermingu árið 2026 er hafin
Fyrir fermingarbörn vorsins 2026 (börn fædd 2012) Skráning í fermingarfræðslu 2025-2026 er hafin! Við bjóðum spennandi og uppbyggilega fermingarfræðslu þar sem við ræðum um lífið, trúna, gildin, hvernig við getum verið góð hvert við annað og margt fleira. Kennslan fer fram í Ástjarnarkirkju þar sem við lærum saman, spjöllum og búum til góðar minningar
Krílatónar hefjast 13. febrúar
Tónlistarnámskeið fyrir börn upp að 16 mánaða aldri, ásamt foreldri/um: Söng- og tónlistarsamvera fyrir ung börn og foreldra þeirra, þar sem tónlist er notuð til að styrkja tengslamyndun og örva börnin. Stundirnar hafa jákvæð áhrif á þroska barnsins, notalegt samfélag og öruggt umhverfi. Foreldrar hitta aðra foreldra og börnin njóta þess að vera innan
Söngsmiðjur og krakkatónar hefjast 13. janúar.
Krakkatónar (2-5 ára) og Söngsmiðja (1.-4.bekkur) er í boði og opið fyrir öll börn á mánudögum. Söngsmiðjan hefst klukkan 14:45 og stendur yrir til 15:30. Börnin geta tekið Frístundarútuna en skrá þarf sérstaklega í hana. Þau börn sem koma sér ekki sjálf heim þarf að sækja í kirkjuna fyrir klukkan 16:00. Þátttaka i Söngsmiðjum