Helgistundir í júní. Sr. Gunnar Jóhannesson þjónar 1. júní
Eins og undanfarin ár verða helgistundir á sunnudögum í júní. Þær eru einfaldari að formi en boðið er upp á hugleiðingu og altarisgöngu. Sr. Gunnar Jóhannesson settur héraðsprestur annast helgistundina 1. júní ásamt Matthíasi V. Baldurssyni tónlistarstjóra. Hressing á eftir og gott samfélag.
Messa með þátttöku eldriborgara. Drengur fermdur
Með guðsþjónustunni 25. maí kl. 11:00 lýkur eldriborgarastarfi Ástjarnarkirkju formlega. Þeir munu taka virkan þátt í messunni með því að lesa ritningarlestra og leiða söng ásamt félögum úr kór Ástjarnarkirkju. Matthías V. Baldursson leiðir tónlistina. Viktor Ísak Kristjónsson verður fermdur. Meðhjálpari er Sigurður Þórisson og prestur sr. Kjartan Jónsson. Hressing og samfélag á eftir messu.
Gospelmessa sunnudaginn 18.maí kl.20:00
Sunnudaginn 18.maí verður síðasta kvöldmessa vetrarins hjá okkur í kirkjunni. Kór kirkjunnar flytur kraftmikla gospel og lofgjörðartónlist ásamt hljómsveit skipuð þeim Friðriki Karlssyni á gítar, Páli E.Pálssyni á bassa, Þorbergi Ólafssyni á slagverk og Matthíasi V. Baldurssyni á píanó. Sr.Kjartan Jónsson leiðir stundina. Allir hjartanlega velkomnir
Vorhátíð sunnudagaskólans 11. maí kl. 11
Árleg vorhátíð sunnudagaskóla kirkjunnar verður haldin 11. maí . Hún hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11 þar sem barnakór kirkjunnar syngur. Mikið verður sungið og svo verður góð fræðsla. Á eftir guðsþjónustunni verður boðið upp á grillaðar pylsur og hoppukastala auk góðs samfélags. Sóknarbörn eru hvött til að fjölmenna.
Óvissuferð – Sunnudaginn 4.maí – kl. 11:00
Næsta sunnudag, 4.maí, verður gestum sunnudagaskólans og öðrum kirkjugestum boðið í óvissuferð. Lagt verður af stað með rútu frá kirkjunni kl. 11:00 og komið aftur um 13.15. Mikilvægt er að öll börn komi í fylgd ábyrgðaraðila og að allir ferðalangar séu klæddir eftir veðri og í góðum skóm.
Óvissuferð æskulýðsstarfsins 22.apríl 2014
Þó veðrið hafi verið risjótt undanfarna daga ætlum við að halda fyrirætlaðri dagskrá og fara í óvissuferð. Ferðin er bæði fyrir Kirkjuprakkara (6-9 ára) og TTT (10-12 ára). Krakkarnir geta geymt skólatöskurnar í kirkjunni meðan á ferðinni stendur. Rútan leggur kl 13:45 af stað frá kirkjunni. Heimkoma áætluð ekki seinna en kl 16:30. Klæðnaður: ekki of fínn






