Kristniboðsdagurinn, sr. Solveig Lára vígslubiskup kemur í heimsókn
Árlegur kristniboðsdagur Þjóðkirkjunnar verður n.k. sunnudag, 14. nóvember. Í tilefni af því mun sr. Solveig Lára Guðmundsdóttir vígslubiskup verða gestur í guðsþjónustu dagins kl. 17:00 og prédika. Í matnum á eftir guðsþjónustu mun hún segja í máli og myndum sögu af ferð sinni til Kenýu á slóðir kristniboða sem hún fór á síðasta ári.
Allra heilagra messa, guðsþjónusta 7. nóvember kl. 17:00
Guðsþjónustan 7. nóvember kl. 17:00 verður helguð allra heilagra messu. Í kirkjubæninni verður beðið fyrir aðstandendum þeirra sem látist hafa frá síðustu allra heilagra messu og prestar kirkjunnar hafa annast útfarir fyrir. Davíð Sigurgeirsson leiðir tónlistina og Stefanía Svavarsdóttir syngur einsöng. Prestar kirkjunnar, sr. Arnór Bjarki Blomsterberg og sr. Kjartan Jónsson annast prestsþjónustuna. Á
Siðbótardagurinn 31. október, guðsþjónusta kl. 17:00, matur á eftir
Sunnudagurinn 31. október er siðbótardagurinn. Þann dag árið 1517 mótmælti Marteinn Lúther spillingu innan kaþólsku kirkjunnar með því að negla skjal með mótmælum sínum í 95 liðum á hallarkirkjuna í Wittemberg í Þýskalandi. Í guðsþjónustunni verður íhugað hvaða áhrif þetta hefur haft á kristnina og menningu Vesturlanda. Davíð Sigurgeirsson leiðir tónlistina og sr. Kjartan
Guðsþjónusta 17. október, barnakórinn syngur
Í guðsþjónustunni 17. október mun barnakór kirkjunnar syngja undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar tónlistarstjóra kirkjunnar. Það verður frumraun kórsins á þessu starfsári. Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg leiðir messuna og mun ígrunda söguna um Miskunnsama Samverjann. Með honum mun sr. Sigurður Már Hannesson skólaprestur þjóna fyrir altari. Að lokinni guðsþjónustu býður Inga Rut kirkjuvörður upp á
20 ára afmælishátíð Ástjarnarsafnaðar 10. október kl 17:00
10. október verður haldið upp á 20 ára afmæli Ástjarnarsafnaðar. Sönghópur undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg syngur. Nýr prédikunarstóll verður vígður og kross í altarisgarði. Geir Jónsson fv. formaður sóknarnefndar flytur ágrip af sögu safnaðarins. Prestar safnaðarins, sr. Arnór Bjarki Blomsterberg og sr. Kjartan Jónsson þjóna. Að lokinni guðsþjónustu býður Inga Rut kirkjuvörður upp veglegar
Íslenskunámskeið fyrir útlendinga 14. september/Course in the Icelandic language 14th September
(English below) Ástjarnarkirkja í Hafnarfirði býður upp á ókeypis íslenskunámskeið fyrir útlendinga, nýbúa og flóttamenn. Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 – 19:00. Námskeiðið hefst 14. september og stendur í 13 vikur. Staður: Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði. Skráning: kjartan.jonsson@kirkjan.is. Ástjarnar-Church in Hafnarfjörður offers a course in the Icelandic language twice a







