g
Loading...
News2025-11-18T19:57:19+00:00

1011, 2022

Gróskumikið starf eldri borgara

Mikil gróska er í starfi eldri borgara í Ástjarnarkirkju. Veglegur og vinalegur hópur mætir vikulega í kirkjuna á miðvikudögum kl. 13:30-15:30. Um er að ræða fremur sjálfbært samfélag sem sýpur m.a. á svartbaunaseyði og borðar bakkelsi sem bæði Inga kirkjuvörður útvegar og leggur á borð og jafnframt þátttakendur sjálfir. Umræður snúast einkum um landsins

411, 2022

Innsetningarmessa á Allra heilagra messu

Sr. Hans Guðberg Alfreðsson prófastur Kjalarnessprófastsdæmis setur sr. Bolla Pétur Bollason inn í embætti prests í Tjarnaprestakalli við guðsþjónustu í Kálfatjarnarkirkju sunnudaginn 6. nóvember á Allra heilagra messu kl. 11:00 (athugið messutíma sem er óvanalegur).  Messan er sameiginleg fyrir báðar sóknir, Ástjarnarsókn og Kálfatjarnarsókn, og því verður ekki messa í Ástjarnarkirkju kl. 17:00 síðdegis. 

211, 2022

Bleik messa var haldin í Ástjarnarkirkju

Bleik messa fór fram í Ástjarnarkirkju sunnudaginn 30. október síðastliðinn. Messan var til styrkar bleiku átaki krabbameinsfélagsins í október. Kross í altarisgarði var baðaður bleikri birtu og ýmsir mættu til kirkjunnar í bleiku, auk þess sem bleikir sokkar frá krabbameinsfélaginu voru falir og seldir eftir messu málefninu til stuðnings. Bragi Guðmundsson steig í stólinn

1910, 2022

Faríseinn og tollheimtumaðurinn og matur í Ástjarnarkirkju 23. okt.

Fjölskylduguðsþjónusta verður í Ástjarnarkirkju sunnudaginn 23. október kl. 17.00. Þá heyrum við dæmisögu Jesú um stærilátan faríseann í helgidómnum og auðmjúka tollheimtumanninn (sjá Lúkasarguðspjall 18. kafla 9.-14. vers). Við syngjum síðan saman Guði lof, því það syngur víst enginn reiður maður, og að lokinni stund verður rjúkandi heit kvöldmáltíð í umsjá Ingu Rutar kirkjuvarðar.

2909, 2022

Fjölskylduguðsþjónusta 2. okt. kl. 17.00

Fjölskylduguðsþjónusta verður í Ástjarnarkirkju 2. október kl. 17.00. Sr. Aldís Rut Gísladóttir prestur í Hafnarfjarðarkirkju leysir af þennan sunnudag og þjónar. Kári Þormar organisti leysir af þennan sunnudag og spilar. Á haustmisseri eru dæmisögur Jesú til umfjöllunar í guðsþjónustunum. Næsta sunnudag verður það dæmisagan um Verkamenn í víngarði (Matteusarguðspjall 20. kafli). Heit kvöldmáltíð í

Go to Top