g
Loading...
News2025-11-18T19:57:19+00:00

1803, 2023

Aðalsafnaðarfundur

Aðalsafnaðarfundur Ástjarnarsóknar, verður haldinn miðvikudaginn 29. mars 2023 klukkan 17:30. Dagskrá:Venjuleg aðalfundarstörf. Tillaga frá sóknarnefnd að aðalmenn í sóknarnefnd verði fimm og sami fjöldi varamanna.Önnur mál. Allt safnaðarfólk velkomið. Kaffiveitingar. Sóknarnefnd Ástjarnarsóknar.

2102, 2023

Alþjóðlegir foreldramorgnar

Alþjóðlegir foreldramorgnar í Ástjarnarkirkju. Á miðvikudagsmorgnum kl. 10-12 er opið hús í Ástjarnarkirkju fyrir börn og foreldra af erlendum uppruna sem vegna aðstæðna hafa þurft að yfirgefa heimalandið. Morgnarnir eru samstarfsverkefni Ástjarnarkirkju og Hafnarfjarðarbæjar. Fólk af ýmsu þjóðerni og margvíslegum trúaruppruna kemur saman ásamt börnum og til staðar er morgunverður handa viðstöddum og leikföng

902, 2023

Biblíudagur og Kór Átthagafélags Strandamanna

Biblíudagurinn verður haldinn hátíðlegur með fjölskylduguðsþjónustu sunnudaginn 12. febrúar kl. 17:00. Kór Átthagafélags Strandamanna sækir okkur heim og syngur við guðsþjónustuna glöð lög og hugvekjandi enda ófá þeirra sem Orðið eilífa hefur haft áhrif á. Stjórnandi kórsins er Ágota Joó. Það er alltaf gaman að sjá sem flesta sækja stundir kirkjunnar og þarna er

1901, 2023

Fjölskylduguðsþjónusta 22. jan. – Skírnin

Verið velkomin til fjölskylduguðsþjónustu sunnudaginn 22. janúar kl. 17:00. Þar verður skírnin sérstaklega til umfjöllunar. Hvað er skírn?  Er skírn sama og nafngift? Hvar þáði Jesús skírn og hjá hverjum? Hvað er skírnarskógur?  Margar eru spurningarnar. Við ætlum að reyna að svara þeim eftir bestu getu og þar að auki syngja sálma saman t.d.

901, 2023

Stefnumót í hádegi

„Stefnumót í hádegi" er streymisþáttur í beinu streymi á vegum Vídalínskirkju í Garðabæ hvar fara fram fróðleg samtöl um margvíslegt það er lýtur að trú og siðferði og því að vera manneskja í heimi hér. Þáttur þessi hefur vaxið og dafnað á undanförnum þremur árum, frá því hann hófst, og áhorf eflst. Nú ætla

612, 2022

Opinn fyrirlestur um stafrænar áskoranir og ofbeldi

Opinn fyrirlestur verður haldinn í Ástjarnarkirkju fimmtudagskvöldið 8. desember kl. 20:00. Kolbrún Hrund Sigurgeirsdóttir verkefnastýra hjá Jafnréttisskóla Reykjavíkurborgar fjallar í erindi sínu um stafrænar áskoranir og ofbeldi og mikilvægi þess að foreldrahópar og nærsamfélag standi saman og hjálpist að við að styðja og vernda börnin okkar öll. Fyrirspurnir og umræður að erindi loknu. Kaffi

Go to Top