Nýr orgelgervill vígður í messu sunnudaginn 13. október
Í messunni sunnudaginn 13. október verður nýr orgelgervill vígður. Þetta verður sennilega í fyrsta sinn sem orgeltónar hljóma í guðsþjónustu í Ástjarnarsöfnuði þótt hann sé orðinn 12 ára gamall. Matthías V. Baldursson tónlistarstjóri leikur á hljóðfærið og kór Ástjarnarkirkju syngur. Prestur er sr. Kjartan Jónsson og meðhjálpari Sigurður Þórisson. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað á
Messa sunnudaginn 22. september kl. 11:00
Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra. Prestur er sr. Gunnar Jóhannesson settur héraðsprestur. Meðhjálpari er Sigurður Þórisson. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar. Hressing á eftir og samfélag.
Stjörnurnar, félag eldriborgara Ástjarnarkirkju, hafa fundi á miðvikudögum kl. 13:30
Stjörnurnar, starf fyrir eldri borgara, er á miðvikudögum kl. 13:30 – 15:30. Allir eldri borgarar eru hjartanlega velkomnir. Samverurnar hefjast með spjalli yfir kaffibolla og síðan verður boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Dagskráin framundan: 16. október: Gísli H. Friðgeirsson segir frá ferð sinni á kajak umhverfis landið og kynnir nýja bók sína "Á sjókeip umhverfis landið".
Hausthátíð Ástjarnarkirkju 8.sept. kl. 11:00
Árleg hausthátíð Ástjarnarkirkju verður haldin 8. september. Hún hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 11:00 þar sem nýr tónlistarstjóri kirkjunnar, Matthías V. Baldursson, verður boðinn velkominn og nýr starfsmaður í barna- og unglingastarfinu, Guðrún Þorgrímsdóttir. Gospelsöngkonan Áslaug Helga Hálfdánardóttir syngur einsöng. Mikið verður sungið. Hólmfríður og Bryndís sjá um fræðslu og kynna barna- og unglingastarfið. Sr. Kjartan
Matti sax nýr tónlistarstjóri kirkjunnar
Nýr tónlistarstjóri, Matthías V. Baldursson, hefur verið ráðinn við Ástjarnarkirkju. Hann verður boðinn velkominn til starfa í guðsþjónustu á hausthátíð kirkjunnar 8. september. Hann hefur lagt stund á tónlist frá unga aldri og leikur á ýmis hljóðfæri. Á komandi vetri mun kór kirkjunnar leggja áherslu á að flytja hressa gospeltónlist ásamt fallegum lofgjörðarlögum sem margir ættu að kannast við
Guðrún Þorgrímsdóttir nýr æskulýðsstarfsmaður
Í guðsþjónustunni á hausthátíð Ástjarnarkirkju 8. september kl. 11:00 verður Guðrún Þorgrímsdóttir formlega boðin velkomin til starfa í barna- og æskulýðsstarf kirkjunnar. Hún er fædd 1979 í Ólafsvík en er búsett í Reykjavík. Guðrún er guðfræðinemi við Háskóla Íslands en hefur einnig stundað nám í Biblíufræðum á Englandi. Hún hefur mikla reynslu af æskulýðsstarfi bæði hérlendis og á erlendri grundu. Hún

