g
Loading...
News2025-11-18T19:57:19+00:00

2009, 2014

Sunnudagaskóli kl. 11:00 og gospelguðsþjónusta kl. 20:00

Sunnudagaskólinn hefur alla kirkjuna til umráða kl. 11:00 á sunnudaginn 21. september. Gospelguðsþjónusta um kvöldið kl. 20:00. Ole Lilleheim framkvæmdastjóri Open Doors í Noregi mun prédika. Hann er sérfræðingur í málefnum ofsóttra kristinna kirkna og manna í heiminum. Hann er mjög áheyrilegur prédikari og hefur frá mörgu að segja. Kór kirkjunnar mun syngja gospellög

1109, 2014

Samkeppni um hönnun safnaðarheimilis og kirkju

Ástjarnarsókn í Hafnarfirði hyggst reisa safnaðarheimili og efnir til samkeppni um hönnun þess, auk frumhönnunar kirkju sem rísa mun síðar Ástjarnarsókn í Hafnarfirði hefur í samvinnu við Arkitektafélag Íslands efnt til opinnar samkeppni um frumhönnun lóðar, kirkju og safnaðarheimilis að Kirkjuvöllum 1 í Hafnarfirði. Tilgangur samkeppninnar er að fá heildarsýn á skipulag lóðar sóknarinnar. 

909, 2014

Hausthátíð Ástjarnarkirkju 14. september kl. 11:00

Árleg hausthátíð Ástjarnarkirkju verður sunnudaginn 14. september kl. 11:00. Hefst hún með fjölskylduguðsþjónustu þar sem félagar úr barnakór kirkjunnar syngja hið nýja sunnudagaskólalag vetrarins í Þjóðkirkjunni. Kirkjukórinn mun einnig taka lagið. Matthías V. Baldursson stjórnar báðum kórunum. Hólmfríður verður með fræðslu og mikið verður sungið. Ný heimasíða verður afhjúpuð og starf kirkjunnar kynnt. Á eftir guðsþjónustu

509, 2014

Sunnudagaskólinn hefst 7. september kl. 11:00

Sunnudagaskólinn hefst sunnudaginn 7. september kl. 11:00 undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur og Bryndísar Svavarsdóttur. Þær munu annast fræðslu og leiða fjörugan söng. Fjölbreytt dagskrá er framundan. Lögð er áhersla að öllum líði vel. Hressing í lok hverrar samveru. Öll börn, foreldrar og aðstandendur hjartanlega velkomin.

2108, 2014

Gospelmessa 7. september kl. 20:00

Fyrsta gospelmessa þessa starfsvetrar verður 7. sept. kl. 20:00 Kór Ástjarnarkirkju sýnir sínar bestu hliðar við undirleik hússbandsins undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Hressing og samfélag á eftir. Kvöldmessur verða fyrsta og þriðja sunnudag hvers mánaðar í vetur. Ýmsir listamenn munu koma í heimsókn og gleðja okkur með nærveru sinni.    

3007, 2014

Margt á döfinni á haustmisseri

Ýmislegt nýtt verður á döfinni í kirkjunni á haustmisseri. 1. Gospelkór fyrir unglinga verður settur á stofn. Æfingar verða á föstudögum kl. 16:30-18:00 og hefjast 5. september. Stjórnandi verður Matthías V. Baldursson, tónlistarstjóri kirkjunnar. 2. Alfa-námskeið verða á fimmtudagskvöldum og hefst 18. september (sjá nánar undir fullorðinsstarf). Að þessu sinni verður það næstum ókeypis,

Go to Top