Leikhúsdagur Ástjarnarkirkju 16. nóvember
Leikrit um Hallgrím Pétursson kl. 20:00 Upp, Upp Stoppleikhópurinn sýnir nýtt leikrit um Hallgrím Pétusson en um þessar mundir er þess minnst að 400 ár eru frá fæðingu hans. Leikritið sem er eftir Valgeir Skagfjörð var frumsýnt var í vikunni í Gerðubergi. Það hentar mjög vel fermingarbörnum og eldri en hefur hitt í mark hjá öllum
Krúttmessa sunnudaginn 2. febrúar kl. 11:00
Krúttmessa sunndaginn 2. Febrúar kl. 11:00. Hólmfríður S. Jónsdóttir og Bryndís Svavarsdóttir sunnudagaskólakennarar leiða stundina og sjá um fræðslu. Barnakór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra kirkjunnar. Hressing og samfélag á eftir.
Blús messa sunnudaginn 2. nóvember kl: 20:00 í Haukaheimilinu
Sunnudaginn 2. nóvember kl: 20:00 er blúsmessa Ástjarnarkirkju í Haukaheimilinu. Blússveit Þollýar verður sérstakur gestur kvöldsins. Kór ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra og Sr. Kjartan Jónsson leiðir stundina. Allir hjartanlega velkomnir
JÓL Í SKÓKASSA – Enginn getur allt en allir geta eitthvað
Þátttaka sunnudagaskóla Ástjarnarkirkju í verkefninu Jól í skókassa (http://www.kfum.is/skokassar/) hefur það að leiðarljósi að gera öllum sem þess óska kleift að hjálpa bágstöddum börnum í Úkraínu. Í Ástjarnarkirkju er ekki nauðsynlegt að koma með fullbúna jólaskókassa inn í verkefnið, heldur það sem hver og einn hefur að gefa, jafnvel þó það sé bara einn
Guðsþjónusta og sunnudagaskóli 26. október kl. 11:00
Í guðsþjónustunni verður þess minnst að 400 áru eru liðin frá fæðingu Hallgríms Péturssonar. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Meðhjálpari er Hjalti Skaptason og prestur er sr. Kjartan Jónsson. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Bryndísar Svavarsdóttur. Eftir guðsþjónustuna verður kökubasar til ágóða fyrir söngferð kirkjukórsins til Írlands næsta vor.




