ROKKmessa sunnudaginn 29.mars í Víðistaðakirkju kl.20:00
https://www.youtube.com/watch?v=uJE6gHmfD40
Gídeonfélagið kynnt 22. mars
Fulltrúar Gídeonfélagsins verða gestir í guðsþjónustu 22. mars kl. 11:00 og munu kynna starf þess. Lofgjörðarhópur kirkjunnar syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Sr. Kjartan Jónsson stjórnar stundinni. Á sama tíma verður gulur dagur í sunnudagaskólanum í aðdraganda páska. Heitt á könnunni á eftir og síðan aðalsafnaðarfundur í beinu framhaldi af því.
Aðalsafnaðarfundur Ástjarnarsóknar 22. mars
Aðalsafnaðarfundur Ástjarnarsóknar verður haldinn eftir guðsþjónustu, sem hefst kl. 11:00, 22. mars. Dagskrá: Venjuleg aðalfundarstörf. Allir lögráða meðlimir Þjóðkirkju Íslands sem eiga lögheimili í Ástjarnarsókn hafa atkvæðisrétt.
Æskulýðsdagurinn, gospelmessa í Haukaheimilinu kl. 20:00
Gospelguðsþjónusta kl. 20:00 í Haukaheimilinu Kór Ástjarnarkirkju syngur við undirleik húsbandsins undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Bryndís Svavarsdóttir æskulýðsfulltrúi kirkjunnar flytur hugleiðingu og sr. Kjartan Jónsson stjórnar stundinni. Skyldumæting hjá fermingarbörnum.
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar 1. mars, krúttmessa kl. 11:00
Það verður mikið um dýrðir í Ástjarnarkirkju í tilefni af deginum. Krúttmessa kl. 11:00 Allar deildir barnastarfsins, sunnudagaskólinn, Kirkjuprakkararnir og 10-12 ára börnin, sameina krafta sína í þessari messu. Hólmfríður S. Jónsdóttir og Bryndís Svavarsdóttir sjá um stundina. Hressing og gott samfélag á eftir.
Bolluhátíð í sunnudagaskólandum kl. 11 og gospelguðsþjónusta kl. 20
Þar sem fastan er að hefjast verður bolluhátíð í sunnudagaskólanum sunnudaginn 15. febrúar kl. 11:00. Kötturinn verður sleginn úr kassanum og kirkjugestir gæða sér á bollum með rjóma. Hólmfríður og Bryndís sjá um fræðslu og leiða sönginn. Kl. 20:00 verður gospelguðsþjónusta þar sem sungin verður nýrri tegund tónlistar. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar







