Lestur Passíusálma á föstudaginn langa kl. 16:00
Eins og undanfarin ár verða valdir Passíusálmar Hallgríms Péturssonar lestnir á föstudaginn langa, 29. mars, kl. 16:00. Á milli lestranna leikur tónlistarstjórinn gömlu lagboða sálmanna. Samveran tekur u.þ.b. klukkutíma.
Messa á pálmasunnudag, 25. mars kl. 11:00
Guðsþjónustan á pálmasunnudag hefst á því að börnin í barnakórnum leika á bjöllur og syngja. Síðan munu þau leika guðspjall dagsins. Annars verður guðsþjónustan með hefðbundnu sniði, kór kirkjunnar syngur undir stjórn Keiths Reed, meðhjálpari er Sigurður Þórisson og prestur sr. Kjartan Jónsson. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma með góða fræðslu. Hressing og samfélag
Fjölskylduguðsþjónusta 18. mars kl. 11
Fjölskylduguðsþjónusta verður sunnudaginn 18. mars kl. 11:00. Báðir kórar kirkjunnar, kirkjukórinn og barnakórinn, munu syngja undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Starfsfólk barnastarfsins annast fræsðslu. Hressing og samfélag á eftir guðsþjónustu. Þá munu unglingar úr unglingastarfi kirkjunnar selja vöflur til ágóða fyrir húsbyggingu munaðarlausra barna í Úganda.
Aðalsafnaðarfundur 18. mars kl. 12:15 (eftir messu)
Aðalsafnaðarfundur Ástjarnarsóknar verður haldinn í kirkjunni eftir messu 18. mars, ca. kl. 12:15. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Messa og sunnudagaskóli 11. mars kl. 11:00
Hefðbundin messa verður sunnudaginn 11. mars kl. 11:00 Sr. Hulda Hrönn M. Helgadóttir héraðsprestur leiðir helgihaldið. Árni Heiðar Karlsson annast undirleik og félagar úr kór kirkjunnar leiða sönginn. Meðhjálpari verður Sigurður Þórisson. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur. Hressing og samfélag á eftir.
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar 4. mars, guðsþjónusta kl. 11:00
Árlegur æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar er 4. mars. Í tilefni af því verður guðsþjónusta sem ber merki þess. Arnór Bjarki Blomsterberg guðfræðingur og æsklýðsfulltrúi Ástjarnarkirkju prédikar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Hressing og samfélag á eftir.







