g
Loading...
News2025-11-18T19:57:19+00:00

3008, 2019

Skráning í barnakór Ástjarnarkirkju (6-10 ára) komin í gang.

Skráning er hafin í barnakór Ástjarnarkirkju fyrir veturinn 2019-2020. Æfingar verða í Ástjarnarkirkju á miðvikudögum klukkan 14:45 - 15:40. Æfingar hefjast miðvikudaginn 4.september. Stefnt er á að hafa starfið lifandi og skemmtilegt meðal annars með leikjum, söng, óvissuferð og náttfatapartý! Kórstjóri er Helga Loftsdóttir. Skráning fer fram í gegnum tölvupóstfangið: barnakor@astjarnarkirkja.is Verið hjartanlega velkomin! 

2908, 2019

Haustgleði og messuhald í Ástjarnarkirkju 1. september 2019

Sunnudaginn 1. september verður messa í Ástjarnarkirkju, klukkan 17:00 síðdegis.  Við fögnum haustinu, sem verður þá formlega hafið og bjóðum kirkjugestum upp á dýrindis íslenska kjötsúpu að messu lokinni. Nýr prestur verður boðinn velkominn til starfa: Sr. Bolli Pétur Bollason. Í tilefni dagsins mun Sr. Bolli segja söguna um syndafallið og í kjölfarið hafa

2408, 2019

Sunnudagaskólar að hefjast, breytt form í Ástjarnarkirkju

Næstkomandi sunnudag, 25.ágúst mun sunnudagaskólinn hefja göngu sína í kirkjum landsins. Eins og áður hefur komið fram verða breytingar á messuformi Ástjarnarkirkju í vetur. Í stað hefðbundins messuforms og hefðbundins sunnudagaskóla verða fjölskyldustundir/fjölskylduguðsþjónustur á sunnudögum klukkan 17:00. Verið öll hjartanlega velkomin í Ástjarnarkirkju, alla sunnudaga klukkan 17:00

2108, 2019

Fyrsta Guðsþjónusta vetrarins og kvöldmáltíðarsamfélag í Ástjarnarkirkju

Fyrsta Guðsþjónusta vetrarins verður í Ástjarnarkirkju, sunnudaginn 25.ágúst klukkan 17:00. Athugið breyttan tíma! Í vetur mun Ástjarnarkirkja leggja áherslu á barnafjölskyldur og fjölskyldusamverur. Við byrjum daginn klukkan 16:00 með opinni söngæfingu þar sem allir eru velkomnir í kirkjuna að æfa og syngja yfir sálmana/lögin sem verða sungin í messunni. Klukkan 17:00 hefst Guðsþjónustan og strax

1608, 2019

Nýr organisti tekur til starfa í Tjarnaprestakalli

Kári Allansson, organisti hefur verið ráðinn til starfa sem organisti við Tjarnaprestakall. Tjarnaprestakall samanstendur af tveimur sóknum: Ástjarnarsókn og Kálfatjarnarsókn. Frá áramótum hefur Kári leyst af í stöðu organista við Kálfatjarnarsókn og býður Ástjarnarkirkja hann hjartanlega velkominn í hóp starfsmanna prestakallsins. Kári hefur góða menntun og mikla reynslu á sviði kirkjutónlistar og væntum við

Go to Top