Fjöldi skólabarna í Ástjarnarkirkju
Það var einu orði sagt jólalegt þegar á fimmta hundrað skólabarna í Ástjarnarsókn mætti í Ástjarnarkirkju dagana 3. 10. og 18. desember. Þau komu glaðleg sem stjörnur í skammdegi með rauðar skotthúfur, íklædd jólapeysum, og með eplakinnar, ásamt kennurum sínum og áttu fræðslustund og samfélag með prestum kirkjunnar, organista og kirkjuverði. Börnin fengu fræðslu
Jólball í Ástjarnarkirkju
Nú skal segja. Jólaball verður haldið í Ástjarnarkirkju sunnudaginn 15. desember kl. 13.00. Við ætlum að ganga saman í kringum einiberjarunn og syngja t.d. um mömmuna sem við sáum kyssa jólasvein. Lítill fugl hvíslaði því síðan að okkur að jólasveinar grínaktugir hafi fengið bæjarleyfi hjá henni Grýlu og munu því líta við í Ástjarnarkirkju
Annar sunnudagur í aðventu: Karlakórinn Esja
Aðventumessa verður haldin í Ástjarnarkirkju 8. desember kl. 17.00 sem er annar sunnudagur í aðventu. Tendrað verður ljós á Betlehemskertinu. Karlakórinn Esja mun syngja og leiða söng undir stjórn Kára Allanssonar. Gengið verður að borði Drottins. Prestar kirkjunnar sr. Arnór Bjarki Blomsterberg og sr. Bolli Pétur Bollason þjóna saman við athöfnina. Að messu lokinni
Kristniboðsdagurinn í Ástjarnarkirkju, 10. nóvember klukkan 17:00
Messa verður í Ástjarnarkirkju, sunnudaginn 10. nóvember klukkan 17:00. Sérstakur gestur verður Helga Vilborg Sigurjónsdóttir sem starfaði um árabil sem kristniboði í Afríku. Kári Allansson organisti Ástjarnarkirkju stýrir safnaðarsöng og Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg leiðir stundina. Inga Rut Hlöðversdóttir kirkjuvörður Ástjarnarkirkju eldar heitan kvöldmat sem öllum messugestum er boðið til að messu lokinni. Verið
Ljósamessa: 3.nóvember klukkan 20:00
Ljósamessa til styrktar Ljósinu (Endurhæfingarstöð fyrir krabbameinsgreinda) verður í Ástjarnarkirkju sunnudagskvöldið 3. nóvember klukkan 20.00. Athugið, messan er klukkan 20:00 þennan sunnudaginn en ekki klukkan 17:00 eins og venjulega. Tónlistarflutningur er í höndum hjónanna Hjalta Jónssonar og Láru Sóleyjar Jóhannsdóttur. Guðrún Kristín Svavarsdóttir fjallar um reynslu sína af sjúkdómnum og Ljósinu. Söfnunarbaukur liggur frammi
Barnakórinn, Davíð og Golíat í messu, 27.október 2019
Sunnudaginn 27. október klukkan 17:00 verður messa í Ástjarnarkirkju. Barnakór Ástjarnarkirkju ætlar að syngja fyrir okkur á milli þess sem við biðjum bæna, heyrum söguna af Davíð og Golíat og hlustum á örhugleiðingu þar sem lagt er út frá Biblíusögu dagsins. Stjórnandi Barnakórs Ástjarnarkirkju er Helga Loftsdóttir. Organisti: Kári Allansson og kirkjuvörður verður Inga







