Bænastundir á fimmtudögum
Bænastundir í kirkjunni hefjast á ný fimmtudaginn 8. september kl. 11.00 og verða reglubundið á þeim tíma í vetur. Fólk er hvatt til þátttöku og ekki hvað síst þau sem hafa tilefni til fyrirbænar eða þakkargjörðar. Eins er hægt að senda inn bænarefni með því að senda tölvupóst á presta Ástjarnarkirkju: Sr. Arnór Bjarki
Fjölskylduguðsþjónusta 11. september
Fjölskylduguðsþjónusta verður í Ástjarnarkirkju sunnudaginn 11. september kl. 17:00. Um er að ræða „Dag kærleiksþjónustunnar" og þá heyrum við dæmisögu Jesú um Miskunnsama samverjann sem finna má í Lúkasarguðspjalli 10. kafla versum 30-37. Sagan minnir okkur á náungaábyrgð og kærleika og talar sterkt inn í þennan dag 11. september en rúm 20 ár eru
Barnakór Ástjarnarkirkju
Barnakórstarf Ástjarnarkirkju hefst fimmtudaginn 15. september kl. 17:00 og verður á þeim sama tíma í vetur. Kórstýra er Svava Rún Steingrímsdóttir. Starfið er fyrir öll börn á aldrinum 6-10 ára. Skráning: barnakor@astjarnarkirkja.is Söngurinn bætir, hressir, kætir!
Guðsþjónusta 4. september
Fyrsta Guðsþjónusta vetrarins.
Hjólreiðamessa 26. júní kl. 11:00. Lagt af stað frá Ástjarnarkirkju kl. 9:30
Árlega hjólreiðamessa safnaðanna í Hafnarfirði og Garðabæ verður haldin í Garðakirkju sunnudaginn 26. júní kl. 11:00. Fyrir messu verður hjólað á milli kirknanna í Hafnarfirði og endað í Garðakirkju. Sr. Henning Emil Magnússon leiðir stundina. Boðið verður upp á kirkjukaffi á eftir í Króki. Þar mun Snorri Beck Magnússon kynna kristalhörpu sem hann er
Bolli Pétur Bollason nýr prestur í Tjarnaprestakalli frá 1. september
Valnefnd Tjarnaprestakalls hefur ákveðið að ráða sr. Bolla Pétur í starf prests í prestakallinu frá 1. september nk. Hann fæddist á Akureyri 9. ágúst 1972 og vígðist til Seljaprestakalls í Breiðholti 14. júlí árið 2002. Hann var skipaður sóknarprestur í Laufásprestkalli 2009 og þjónaði þar til ársins 2018. Síðan þá hefur hann sinnt afleysingastörfum







