Aðalsafnaðarfundur Ástjarnarkirkju 14. apríl kl. 12:30
Aðalsafnaðarfundur Ástjarnarkirkju verður haldinn að lokinni guðsþjónustu þann 14. apríl næstkomandi. Hefst guðsþjónustan kl. 11. Dagskrá fundarinns:
Dagskráin um páskana
Föstudagurinn Langi, 29. mars kl. 17-18: Lestur Passíusálma kl. 17-18 Lesnir verða 10 valdir Passíusálmar. Lesarar verða safnaðarfólk úr ýmsum greinum safnarðarstarfsins. Helga Þórdís Guðmundsdóttir tónlistarstjóri kirkjunnar leikur gamla lagboða Passíusálmanna á milli lestra. Páskadagur 31. mars Hátíðarguðsþjónustakl. 11:00: Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Sunnudagaskóli á sama tíma
Biskup Íslands vísiterar í Kjalarnessprófastsdæmi
Frú Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands hóf formlega vísitasíu sína í Kjalarnessprófastsdæmi á Hérðasfundi prófastsdæmisins í gær, þiðjudaginn 19. mars. Agnes mun vísitera hjá okkur í Ástjarnarsókn mánudaginn 22. apríl nk. Á flicr síðu Kirkjunnar getum við fylgst með ferðum Frú Agnesar um prófastsdæmið í máli og myndum. http://www.flickr.com/photos/kirkjan/sets/72157633027540532/
Hellaferð Kirkjuprakkara frestað
Í gær (laugardag) athugaði ég aðgengi og aðstæður í Leiðarenda, hellinum sem Kirkjuprakkarar hafa á dagskrá að skoða. Auðvelt var að komast að hellinum, þ.e. gönguleiðin var greiðfær. Dyngjan sem opið er í var fullt af snjó en verst er að botn hellisins er líkastur skautasvelli og erfitt að fóta sig. Þess vegna tel

