Guðsþjónusta 22. október
Sunnudaginn 22. október kl. 17:00 verður guðsþjónusta í Ástjarnarkirkju. Sr. Bolli Pétur Bollason þjónar. Karl Olgeirsson leikur á nýjan flygil kirkjunnar undir almennan söng. Boðið verður upp á heitan mat að guðsþjónustu lokinni. Verið öll velkomin!
Bleik messa 15. október
Bleik messa verður í Ástjarnarkirkju sunnudaginn 15. október kl. 17:00. Krabbamein snertir okkur öll á lífsleiðinni og Bleik messa er liður í átaki gegn þeim mikla vágesti. Sr. Bolli Pétur Bollason þjónar. Hjónin Karl Olgeirsson og Sigga Eyrún Friðriksdóttir sjá um tónlistina. Reynsluræðu flytur Sólveig Ása Tryggvadóttir sem hefur kynnst sjúkdómnum á eigin skinni.
Guðsþjónusta 8. október
Verið velkomin til guðsþjónustu í Ástjarnarkirkju sunnudaginn 8. október kl. 17:00. Að þjónustunni koma sr. Bolli Pétur Bollason, Karl Olgeirsson nýráðinn tónlistarstjóri kirkjunnar sem leikur undir almennan söng, og fermingarstúlkur lesa ritningarlestra. Auðmaður, úlfaldi, nálaraugu, allt kemur það nú við sögu í hugleiðingu þessa sunnudags. Að lokinni guðsþjónustu verður sem fyrr boðið upp á
Trúir þú þessu? Guðsþjónusta 24.09 klukkan 17:00
Í samtali sínu við Mörtu, mælti Jesús: „Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?“ Hverju ætli Marta hafi svarað? Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin til Guðsþjónustu og kvöldmáltíðarsamfélags í Ástjarnarkirkju,
Mæðist þú í mörgu? Guðsþjónusta 17. september kl. 17:00.
Mæðist þú í mörgu? Hverju þá? Er streitan að draga athygli þína frá fegurð lífs? Sunnudaginn 17. september kl. 17:00 í Ástjarnarkirkju veltum við vöngum yfir þessu út frá texta í Lúkasarguðspjalli 10. kafla vers 38-42, hvar Jesús fer í heimsókn til systrana Maríu og Mörtu. Lærdómsrík heimsókn. Heit kvöldmáltíð verður borin á borð
„Viltu verða heill?“
"Viltu verða heill?" - Spurði Jesús Kristur sjúka manninn er þeir mættust við græðingarlaugina í Batesda. Að bragði svaraði sá sjúki: "Herra, ég hef engan til að láta mig í laugina þegar vatnið hrærist og meðan ég er á leiðinni fer annar ofan í á undan mér." - Sá sjúki var einn, hann hafði







