Í samtali sínu við Mörtu, mælti Jesús:

„Ég er upprisan og lífið. Sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi. Og hver sem lifir og trúir á mig mun aldrei að eilífu deyja. Trúir þú þessu?“

Hverju ætli Marta hafi svarað?

Við bjóðum ykkur hjartanlega velkomin til Guðsþjónustu og kvöldmáltíðarsamfélags í Ástjarnarkirkju, alla sunnudaga klukkan 17:00.

Guðsþjónustan verður jafnframt síðasta guðsþjónusta Erlu Rutar, organista Ástjarnarkirkju áður en hún hefur störf sem organisti í Háteigskirkju. Við þökkum henni að sjálfsögðu kærlega fyrir gott samstarf og hlökkum til að fylgjast með henni blómstra á nýjum vettvangi.