Námskeiðið Kristið líf og vitnisburður 5., 12., og 19. júní
Námskeiðið Kristið líf og vitnisburður sem fjallar um nokkur grundvallaratriði kristinnar trúar verður haldið í Ástjarnarkirkju þrjú miðvikudagskvöld, 5, 12., og 19. júní kl. 20-21:30. Þátttaka er ókeypis. Námskeiðið kemur frá samtökum hins heimskunna prédikara Billys Grahams og hefur verið kennt víða um heim við góðan orðstír. Safnaðarfólk er hvatt til að nýta sér
Helgistund á sjómannadaginn, 2. júní kl. 11:00
Félagar úr kór Ástjarnarkirkju leiða söng undir stjórn Helgu Þórdísar Guðmundsdóttur tónlistarstjóra. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Heitt á könnunni og samfélag á eftir.
Hetjuganga á Helgafell í dag – við toppum vetrarstarfið
Í dag, þriðjudaginn 28. maí hafa Kirkjuprakkarar það á sinni dagskrá að ganga á Helgafell. Dagurinn er viðtalsdagur í Hraunvallaskóla og etv tilvalið fyrir foreldra og systkini að skella sér með í hetjugöngu á okkar fagra bæjarfjall, Helgafell. RÚTAN LEGGUR AF STAÐ FRÁ KIRKJUNNI KL. 14 Nauðsynlegt er að tilkynna þátttöku, klæða sig eftir
Messa á þrenningarhátíð 26. maí kl. 11:00
Eldri borgarar eru boðnir sérstaklega velkomnir til þessarar messu. Félagar úr eldriborgarafélagi Ástjarnarkirkju, Stjörnunum, mun lesa ritningarlestra og taka virkan þátt í söngnum ásamt félögum úr kór kirkjunnar. Arnhildur Valgarðsdóttir organisti í Lágafellssókn leiðir sönginn og annast undirleik. Meðhjálpari er Sigurður Þórisson. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Heitt á könnunni og samfélag á eftir messu.
Guðsþjónusta á hvítasunnudag kl. 11
Félagar úr kór kirkjunnar leiða söng undir stjórn Heiðrúnar Kjartansdóttur. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Heitt á könnunni á eftir og samfélag.
Vorferð eldriborgarfélagsins Stjarnanna 16. maí
Vorferð félags eldri borgara Ástjarnarkirkju, Stjarnanna, verður 16. maí. Farið verður austur að Skógum. Lagt er af stað kl. 10 f.h. og komið til baka um kvöldið. Verð með hádegismat er 5.ooo kr. á mann. Allir eldri borgarar eru velkomnir en sætaframboð er takmarkað. Áhugasamir hafi samband við sóknarprestinn, Kjartan Jónsson, í síma 863 2220.

