Foreldramorgnar fá heimsókn 19.nóv
Bjargey Ingólfsdóttir félagsráðgjafi, fæðingardoula og höfuðbeina- og spjaldhryggsmeðferðaraðili ætlar að koma til okkar í spjall á foreldramorgninum næsta þriðjudag, þ.e. 19.nóv kl 10-12 Bjargey starfar sem doula sem er stuðningsaðili fyrir fjölskyldur á meðgöngu, í fæðingu og eftir fæðingu. Hún mun fjalla um mikilvægi stuðnings fyrir nýbakaða foreldra og hvaða áhrif það hefur á fjölskylduna
Kristniboðsdagur Þjóðkirkjunnar 10. nóvember
Árlegur kristniboðsdagur Þjóðkirkjunnar verður haldinn hátíðlegur í guðsþjónustu kl. 11. Sérstakur gestur verður Skúli Svavarsson kristniboði sem mun segja frá starfi Kristniboðssambandsins í máli og myndum. Hann mun einnig prédika. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar og börn úr æskulýðsstarfinu syngja. Prestur er sr. Kjartan Jónsson og meðhjálpari Sigurður Þórisson. Tekið verður á móti
Æfing hjá barnakór fellur niður föstud. 25.okt
Þar sem það er vetrarfrí hjá flestum börnum í kórnum okkar þá fellur æfingin föstudaginn 25.okt niður vegna þessa. Næsta æfing verður föstudaginn 1. nóvember. Kórinn mun svo syngja í fjölskylduguðsþjónustu sunnudaginn 3. nóvember kl.11:00. Hafið það gott í vetrarfríinu :) Kv. Matti
Gospelguðsþjónusta 27.okt kl.20:00
Sunnudaginn 27.okt verður gospelguðsþjónusta kl.20:00 þar sem tónlistin mun ráða ríkjum. Sérstakir gestir sem spila munu með kórnum okkar verða Friðrik Karlsson gítarleikari og Þorbergur Ólafsson slagverksleikari. Vegna þessa verður ekki messa kl.11:00 en sunnudagaskólinn verður samt á sínum stað á þeim tíma.
Gestur í messu 20. október kl. 11:00
Sr. Gunnar Jóhannesson settur héraðsprestur Kjalarnessprófastsdæmis verður prestur í messunni sunnudaginn 20. október kl. 11:00. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar og leikur undir á nýja kirkjuorgelgervil kirkjunnar. Meðhjálpari er Sigurður Þórisson. Vinadagur verður í sunnuagaskólanum sem verður á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar S Jónsdóttur og Bryndísar Svavarsdóttur. Þar verður mikill





