Sunnudagaskóli 16. mars kl. 11:00. Prinsa- og prinsessudagur
Það verður prinsa- og prinsessudagur í sunnudagaskólanum á sunnudaginn. Þá mega allir, bæði stórir og smáir koma í búningum. Skólinn hefur alla kirkjuna til umráða. Hressing og samfélag á eftir.
Gospelmessa 16. mars kl. 20:00
Sú hefð hefur skapast í vetur að halda eina gospelmessu í mánuði. Messa þessa mánaðar verður 16. mars kl. 20:00. Að vanda mun kór kirkjunnar syngja við undirleik hússbandsins en það skipa Matthías V. Baldursson píanó og orgel (stjórnandi), Friðrik Karlsson (gítar), Þorbergur Ólafsson (slagverk) og Páll Kr. Pálsson (bassi). Meðhjálpari og tæknimaður er
Æskulýðsguðsþjónusta í Haukaheimilinu sunnudaginn 9. mars kl. 11:00
Æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar var um síðustu helgi en við höldum upp á hann sunnudaginn 9. mars með æskulýðsguðsþjónustu í veislusal Haukaheimilisins kl. 11:00 Krakkar úr æskulýðsstarfi kirkjunnar lesa ritningartexta og flytja bænir undir stjórn Guðrúnar Þorgrímsdóttur. Kór Ástjarnarkirkju syngur við undirleik hljómsveitar sem Matthías V. Baldursson tónlistarstjóri kirkjunnar stjórnar en hana skipa auk hans Davíð
Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 2. febrúar kl. 11:00
Fjölskylduguðsþjónusta verður kl. 11:00 sunnudaginn 2. febrúar kl. 11:00 Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra kirkjunnar. Hólmfríður S. Jónsdóttir annast fræðslu Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Hressing og samfélag á eftir.
Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 23. febrúar kl. 11
Messa verður sunnudaginn 23. febrúar kl. 11. Barn verður borið til skírnar og félagar úr hljómsveitinni Tilviljun? taka lagið. Kór Ástjanarkirkju syngur undir stjórn Friðriks Karlssonar gítarleikara. Þorbergur Ólafsson leikur á slagverk. Prestur er sr. Kjartan Jónsson, meðhjálpari Sigurður Þórisson. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur og Bryndísar Svavarsdóttur. Hressing og






