g
Loading...
News2025-11-18T19:57:19+00:00

3103, 2014

Messa, sunnudagaskóli og aðalsafnaðarfundur Ástjarnarsóknar sunnudaginn 6. apríl

Messan hefst kl. 11:00. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Prestur er sr. Kjartan Jónsson og meðhjálpari Sigurður Þórisson. Sunnudagaskóli verður á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur og Bryndísar Svavarsdóttur. Hressing og samfélag á eftir. Aðalsafnaðarfundur Ástjarnarsóknar hefst fljótlega eftir guðsþjónustuna. Allir meðlimir Þjóðkirkjunnar í Ástjarnarsókn hafa rétt til fundarsetu

2703, 2014

Guðsþjónusta, hattar og höfuðföt sunnduaginn 30. mars

Sr. Gunnar Jóhannesson settur héraðsprestur Kjalarnessprófastsdæmis leiðir messuna sunnudaginn 30. mars og kór kirkjunnar syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma undir stjórn Bryndísar Svavarsdóttur og er gestir hans eru hvattir til að hafa með sér höfuðfat í einhverri mynd. Hressing og gott samfélag á eftir messu.

2203, 2014

Gestir í guðsþjónustu og litadýrð í sunnudagaskólanum 23. mars kl. 11

Hefðbundin messa verður kl. 11 sunnudaginn 23. mars. Félagar úr kirkjukórnum leiða sálmasöng undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Hljómsveitin Gig kemur í heimsókn og leikur nokkur lög af nýútkominni plötu sinni sem boðin verður til sölu eftir messu. Prestur er sr. Kjartan Jónsson og meðhjálpari Sigurður Þórisson. Í sunnudagaskólanum ræður litadýrðin ríkjum. Allir eru

1803, 2014

Starf tónlistarstjóra Ástjarnarkirkju laust til umsóknar

  Leitað er að fjölhæfum tónlistarmanni  til þess að verða tónlistarstjóri Ástjarnarkirkju í Hafnarfirði í fullu starfi. Ástjarnarsókn nær yfir  Áslands, Ása og Vallahverfi og er íbúafjöldi þeirra um 7000 manns. Helgihald fer fram í kapellu safnaðarins á framtíðar kirkjulóð að Kirkjuvöllum 1. Leitað er að einstaklingi með reynslu af kirkjustarfi, frumkvæði og hugsjón

Go to Top