Kynningarfundur starfs eldri borgara 21. septmber kl. 13:30
Stjörnurnar, starf eldri borgara Ástjarnarkirkju býður til kynningarfundar í kirkjunni miðvikudaginn 21. september k. 13:30. Sérstakur gestur fundarins verður tónlistar- og fjölmiðlamaðurinn Helgi Pétursson sem mun kynna Gráa herinn.
Hjóna- og paranámskeið hefst fimmtudaginn 6. Október kl. 19:00
Nýtt námskeið hefst fimmtudaginn 6. október 2016 kl. 19:00 og stendur í sjö vikur. Hjónanámskeiðið er byggt á bókinni Hún og hann, hamingjuríkt hjónaband, eftir Nicky og Silu Lee og er hugsað fyrir hjón/pör sem vilja byggja upp traust samband sem endist, gera gott samband betra. Á námskeiðinu hlusta þátttakendur á fyrirlestra og síðan
Barnakórinn hefst 8.sept.
Skránin er hafin í barnakór kirkjunnar. Æfingar verða á fimmtudögum kl.14:15 - 15:00 og hefjast þær 8.september. Hér er hægt að sækja um í kórinn ! Á kóræfingum fá börnin innsýn í raddbeitingu með sérstökum raddæfingum, þau læra fjöldan allan af lögum, en mikil áhresla er lögð á að kenna sálma og er inntak sálmanna sem
Viðburðir í nóvember og desember
Í vetur verða messur á víxl kl.20 og kl.11:00. Endilega kynnið ykkur messutímana vel. Fyrsta sunnudag í mánuði verða kvöldmessur í Haukaheimilinu og lofgjörðarkvöld þriðja hvern sunnudag kl.20 í kirkjunni okkar. Annan og fjórða hvern sunnudag eru messurnar kl.11:00. Sunnudagaskólinn er að sjálfsögðu alla sunnudaga kl.11:00. Hlökkum til að eiga skemmtilegan vetur með ykkur
Fyrsta messa vetrarins
Fyrsta messa vetrarins verður haldin í Haukaheimilinu sunnudaginn 21.ágúst kl.11:00. Matthías V. Baldursson tónlistarstjóri og Íris Guðmundsdóttir gospelsöngkona leiða söng og sjá um tónlistina. Prestur er sr.Kjartan Jónsson. Fermingarbörn og foreldrar sérstaklega velkomnir
Fermingarnámskeið 15. – 18. ágúst og Vatnaskógur 19-20. ágúst
Fermingarbörn Ástjarnarkirkju 2017 mæta á fermingarnámskeið sem haldið verður í Víðistaðakirkju mánudaginn 15. - fimmtudaginn 18. ágúst kl. 13-16 alla dagana. Margir fræðarar annast fjölbreytta fræðslu. 19. - 20. ágúst verður farið sumarbúðir KFUM í Vatnaskógi á ævintýrafermingarnámskeið.







