Vígsla safnaðarheimilis Ástjarnarkirkju 8. október kl. 14:00
Sunnudaginn 8. október kl. 14:00 verður mikill hátíðardagur hjá okkur þegar nýja safnaðarheimilið okkar verður vígt. Biskup Íslands, frú Agnes M. Sigurðardóttir, mun annast það með aðstoð sóknarprests og sóknarfólks. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Keiths Reed.
24. september: Messa og sunnudagaskóli kl. 11:00
Sr. Stefán Már Gunnlaugsson héraðsprestur stjórnar messunni. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Keiths Reed. Sigurður Þórisson verður meðhjálpari. Sunnudagakóli á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur. Hressing og samfélag á eftir.
Ástjarnar-Church in Hafnarfjörður offers a course in Icelandic twice a week this fall. Classes will be on Wednesdays and Thusdays at 19:30-21:00 every week for 13 weeks, starting on 13th of September 2017. The course is free. Place: Ástjarnarkirkja, Kirkjuvellir 1, 221 Hafnarfjörður. Registering: kjartan.jonsson@kirkjan.is.
Íslenskunámskeið fyrir útlendinga
Ástjarnarkirkja í Hafnarfirði býður upp á ókeypis íslenskunámskeið fyrir útlendinga, nýbúa og flóttamenn. Kennt verður á miðvikudögum og fimmtudögum kl. 19:30 – 21:00. námskeiðið hefst 13. september. Staður: Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði. Skráning: kjartan.jonsson@kirkjan.is.
Hausthátíð Ástjarnarkirkju 3. september kl. 11:00
Vetrarstarf Ástjarnarkirkju hefst með árlegri hausthátíð sunnudaginn 3. september kl. 11:00 í nýju kirkjunni okkar. Hátíðin hefst með léttri fjölskylduguðsþjónustu. Á eftir henni verður boðið upp á ýmislegt góðgæti. Allar starfsgreinar kirkjunnar verða kynntar. Sr. Pétur Þorsteinsson galdraprestur kemur í heimsókn og sýnir töfrabrögð Allir velkomnir, ungir sem eldri.
Síðasta helgistundin í gömlu Ástjarnarkirkju 25. júní kl. 11:00
Sunnudaginn 25. júní kl. 11:00 verður síðasta helgistundin í "gömlu" Ástjarnarkirkju. Sr. Kjartan Jónsson annast stundina en Stefán Henrýsson annast undirleik. Ekkert helgihald verður í ágúst en þegar það hefst í ágúst verður það í nýja húsinu okkar sem alveg að verða tilbúið.






