Köllun Móse í messu, 13. október 2019
Sunnudaginn kemur 13. október verður fjölskyldumessa í Ástjarnarkirkju kl. 17.00. Þá verður fjallað um Móse úr Gamla testmentinu sem þið sjáið á meðfylgjandi mynd. En af hverju er hann þarna með horn? Skrýtið, skoðum það á sunnudaginn. Kári Allansson organisti ætlar að stýra okkur í almennum söng. Síðan verður heit máltíð í boði eftir
Jósef og bræður hans
Sunnudaginn 29. september verður guðsþjónusta kl. 17 og verður þar m.a. sögð sagan af Jósef og bræðrum hans. Stundin er um 45 mínútur og að henni lokinni er messugestum boðið upp á kvöldmat. Sr. Arnór leiðir helgihaldið og Kári organisti leiðir safnaðarsöng. Allir velkomnir.
Abraham og Ísak í Ástjarnarkirkju, sunnudaginn 22.september kl: 17:00
Í fjölskyldumessu, sunnudaginn 22.september klukkan 17:00 ætlar Sr. Bolli Pétur að segja söguna af feðgunum Abraham og Ísak. Söfnuðurinn syngur saman undir stjórn organistans Kára Allanssonar. Leiksvæði verður aftast í kirkjusalnum fyrir börn sem vilja dunda sér á meðan þau hlusta á sögur og taka þátt í samsöng. Heitur kvöldmatur (Lasagne) verður í boði
Málþing um málefni eldri borgara í Ástjarnarkirkju
Ástjarnarkirkja og Félag eldri borgara í Hafnarfirði standa fyrir málþingi í safnaðarheimili Ástjarnarkirkju að Kirkjuvöllum 1, Hafnarfirði, þriðjudaginn 24. september næstkomandi frá klukkan 14.00 – 16.00. Húsið opnar kl.13.30 Á þinginu verður fjallað um málefni er snúa að daglegu lífi eldri borgara. Dagskrá málþingsins: Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg, settur sóknarprestur Ástjarnarkirkju setur þingið. Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
Örkin hans Nóa, 15. september klukkan 17:00
Næstkomandi sunnudag, 15. september 2019 verður messa í Ástjarnarkirkju, klukkan 17:00 síðdegis. Venju samkvæmt býður Ástjarnarkirkja kirkjugestum uppá heitan kvöldverð að messu lokinni. Að þessu sinni verður boðið uppá kubbasteik, á gamla mátann! Í messunni ætlar Sr. Bolli að segja söguna um syndaflóðið, Nóa, örkina og allt það hafarí sem svo í kjölfarið fylgdi.
Kaín og Abel í Guðsþjónustu, sunnudaginn 8.september klukkan 17:00
Á sunnudaginn klukkan 17:00 segjum við söguna af Kain og Abel uppá gamla mátann! Já, gott fólk, gömlu góðu loðmyndirnar verða dregnar upp. Verið velkomin í nostalgíu, sögur, söng, bænir og heitan kvöldverð á eftir. Plokkfiskur og rúgbrauð í boði! Prestur: Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg Organisti: Kári Allansson Kirkjuvörður: Inga Rut Hlöðversdóttir Ath: Heitur kvöldmatur







