Barna-, unglinga- og fermingarstarf fer í tímabundið frí vegna Covid-19
Vegna ástandsins í þjóðfélaginu í tengslum við Covid-19 veiruna fer allt barna- og unglingastarf í Ástjarnarkirkju í tímabundið frí, að minnsta kosti til 25.október næstkomandi. Hið sama á við um fermingarstarf kirkjunnar. Hlutirnir í samfélaginu eru fljótir að breytast og því í raun ómögulegt að segja af eða á hvort allt fari af stað
Icelandic course suspended the next two weeks/Íslenskunámskeiði frestað næstu tvær vikurnar
Due to new regulations from the bishop of Iceland all work in our congregation will have to be suspended until 25. October because of the covid 19 pandemic. So, therefore, our Icelandic course will have to be suspended as well. Further information will be shared here as soon as we receive them. Vegna nýrrar
Engar guðsþjónustur í október
Fyrirmæli hafa borist frá biskupi Íslands um að í ljósi hertra sóttvarna verði allar guðsþjónustur felldar niður í október. Það verður því ekkert helgihald í Tjarnaprestakalli, Ástjarnarkirkju og Kálfatjarnarkirkju í þessum mánuði. Prestarnir eru ávallt til viðtals. Ég hvet okkur öll til að huga vel að sóttvörnum og uppörva og styðja hvert annað. Þessi
Breytt plan fyrir sunnudaginn 4.október í Ástjarnarkirkju
Góðu sóknarbörn Ástjarnarkirkju. Í ljósi aðstæðna í samfélaginu og nýjustu vendinga í tengslum við samkomubann sem á að taka gildi á mánudaginn næsta, þá verður breyting á áður auglýstri messu í Ástjarnarkirkju, sunnudaginn 4.október. Barnakórinn mun ekki syngja en þess í stað verður samvera í kirkjunni. Að sjálfösögðu bjóðum við allt fólk velkomið en
Fjölskyldustund í Ástjarnarkirkju 4.október klukkan 17:00
Guðsþjónusta verður í Ástjarnarkirkju, sunnudaginn 4.október klukkan 17:00. Barnakór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Helgu Loftsdóttur & undirleiks Davíðs Sigurgeirssonar. Sr. Kjartan Jónsson mun leiða stundina & segja Biblíusögu. Verið öll hjartanlega velkomin í góða stund og létta stemningu í Ástjarnarkirkju.
Göngumessa næsta sunnudag, 27. september klukkan 17:00
Næstkomandu sunnudag ætlum við að bregða undir okkur betri fætinum og blása til göngumessu. Gengið verður frá Ástjarnarkirkju að Hafnarfjarðarkirkjugarði. Stundin hefst klukkan 17:00 í Ástjarnarkirkju með signingu og upphafsbæn. Að lokinni upphafsbæn verður gengið af stað í góðum anda í átt að kirkjugarði Hafjarfjarðar. Tvisvar á leiðinni verður staldrað við og lesnir valdir







