Starf fyrir eldri borgara á fimmtudögum kl. 13:30
Starf fyrir eldri borgara í Ástjarnarkirkju á fimmtudögum kl. 13:30-15:30. Dagskráin: 13:30-14:00: Kaffispjall 14:00-15:15: Áhugavert efni 15:15-15:30 Helgistund 21. febrúar mun Kristín J. Kristjánsdóttir fjalla um Megas 28. febrúar mun Eysteinn Sigurðsson sýna myndir frá ferð hans til Egyptalands 7. mars: Saga Borgarættarinnar I, aðgangur 500 kr. Allir velkomnir!
Messa sunnudaginn 17. febrúar kl. 11.00
Næstkomandi sunnudagur er fyrsti sunnudagur í föstu. Kór kirkjunnar mun flytja fallega tónlist í tilefni dagsins við stjórn og undirleik Helgu Þórdísar. Sr. Ragnar Gunnarsson stýrir stundinni. Sunnudagaskólinn er á sama tíma undir dyggri stjórn þeirra Fríðu og Bryndísar, þemað á sunnudag er "prinsar og prinsessur" :) Allir eru hjartanlega velkomnir, kaffi og "með
Sunnudaginn 10. feb. er messa kl. 11:00 og sunnudagaskóli á sama tíma.
Félagar úr kór Ástjarnarkirkju leiða sönginn við stjórn Helgu Þórdísar. Sr. Kjartan Jónsson leiðir stundina. Sunnudagaskólinn er á sínum stað með þeim Fríðu og Bryndísi. Heitt á könnunni, "gott í gogginn" og gott spjall í boði eftir stundina. Texta dagsins má sjá hér.
Fundur um framtíð Ástjarnarsóknar 21. febrúar kl. 20:00
Almennur safnaðarfundur um framtíð Ástjarnarsóknar verður haldinn í kirkjunni 21. febrúar kl. 20:00. Aðalumfjöllunarefnið verður um húsnæðismál safnaðarins. Gestur frá skipulagsyfirvöldum Hafnarfjarðar verður á meðal ræðumanna. Dagskrá verður birt hér á heimasíðunni strax og hún liggur fyrir. Dagskrá: -Fulltrúi Sóknarnefndar Ástjarnarkirkju gerir grein fyrir hugmyndum hennar -Sr. Kjartan Jónsson sóknarprestur gerir grein fyrir nýtingu
Gospelmessa sunnudaginn 27. janúar kl. 11:00
Sunnudaginn 27. janúar kl. 11:00 er gospelmessa í Ástjarnarkirkju. Kór kirkjunnar heldur uppi söngnum undir stjórn Helgu Þórdísar. Sr. Kjartan Jónsson leiðir stundina. Fermingarbörn í Hraunvallaskóla mæti. Stuttur fundur með aðstandendum á eftir messu. Sunnudagaskólinn er á sama tíma undir stjórn Fríðu og Bryndísar. Allir eru hjartanlega velkomnir. Heitt á könnunni og notalegt samfélag eftir
12 sporin andlegt ferðalag á mánudögum kl. 20-22
Nýtt námskeið 12 sporin andlegt ferðalag er hafið í kirkjunni og verður á mánudagskvöldum kl. 20-22. Samverurnar í janúar eru opnar öllum og fólk getur kynnt sér efni ferðalagsins án allra skuldbindinga. Í lok mánaðarins verður námskeiðinu lokað og eftir það er ekki hægt að slást í för með hópnum. Í 12 spora-ferðinni vinnur fólk með

