Fjölskylduguðsþjónusta 12. janúar kl. 11:00
Við byrjum árið með fjölskylduguðsþjónustu. Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar Hólmfríður sér um fræðslu. Hugleiðing og mikill söngur. Hressing og samfélag á eftir.
Barnakórinn fer í gang aftur 10.janúar
Barnakór Ástjarnarkirkju hefur verið öflugur síðustu önn og komið nokkrum sinnum fram í Guðsþjónustum í kirkjunni. Er þetta frábært tækifæri fyrir krakka sem hafa áhuga á söng til að koma fram og læra að syngja í hóp. Æfingar eru á föstudögum kl.16:00 - 16:45 og verður fyrsta æfingin á þessu ári nk.föstudag 10.janúar. Áhugasamir
Jólahald í Ástjarnarkirkju
22. desember Messa kl. 11:00 Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar Prestur er sr. Kjartan Jónsson Sunnudagaskóli á sama tíma. Aðfangadagur jóla 24. desember Fjölskylduguðsþjónusta kl. 14:00 Barnakór Ástjarnarkirkju leiðir söng undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar Hólmfríður S. Jónsdóttir annast fræðslu Prestur er sr. Kjartan Jónsson Aftansöngur kl. 18:00 Guðrún Thelma Matthíasdóttir
Æskulýðsstarfið í jólafríi til 7. janúar 2014
Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Þökkum allar skemmtilegu stundirnar sem við áttum saman á árinu sem er að líða. Hittumst hress og kát þriðjudaginn 7. janúar Bryndís og Guðrún
Guðsþjónusta kl. 11
Félagar úr eldriborgarafélagi kirkjunnar Stjörnunum leiða söng undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra og lesa ritningarlestra. Börn úr æskulýðsstarfi kirkjunnar sýna helgileik undir stjórn Bryndísar Svarsdóttur og Guðrúnar Þorgrímsdóttur. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Föndur í sunnudagaskólanum á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur. Sigurður Þórisson kirkjuvörður býður upp á hressingu á eftir
8. desember: Kaffihús í sunnudagaskólanum kl. 11:00
Sunnudaginn 8.desember kl. 11.00 verður jólakaffihús í sunnudagaskólanum. Stundin hefst á samveru í kirkjunni. Þar verða ljós tendruð á aðventukransinum, sögð saga hirðanna og sungin jólalög. Síðan færa kirkjugestir sig yfir í safnaðarsalinn sem að þessu sinni verður breytt í jólakaffihús. Aðventukvöld kl. 20:00.





