Gospelguðsþjónusta 16. febrúar kl. 20:00
Sunnudaginn 16. febrúar verður gospelguðsþjónusta í kirkjunni kl. 20:00. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra við undirleik húsbandsins en í því eru auk hans Friðrik Karlsson, gítarleikari og Þorbergur Ólafsson trommuleikari. Sr. Kjartan Jónsson stjórnar stundinni.
Leikhúsið Tíu fingur sýnir leikritið um Mjallhvíti
Sunnudaginn 16.febrúar kl. 11:00 kemur leikhúsið Tíu fingur í heimsókn í sunnudagaskólann og sýnir okkur leikritið um Mjallhvíti. Leikritið er ætlað börnum á öllum aldri og tekur um 30 mínútur í sýningu. Sýningin hefur hlotið góða dóma og umsagnir gesta og er hægt að sjá brot úr verkinu hér: http://www.youtube.com/watch?v=3yGARoEkcu0
Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 9. febrúar
Messa sunnudaginn 9. febrúar kl. 11. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar Prestur er sr. Kjartan Jónsson sem mun prédika um efnið: Ekki er allt sem sýnist. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur og Bryndísar Svavarsdóttur Hressing og samfélag á eftir. Stuttur fundur með foreldrum fermingarbarna úr Áslandsskóla
Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 26. janúar kl. 11
Hefðbundin messa verður kl. 11. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra kirkjunnar. Prestur er sr. Kjartan Jónsson og meðhjálpari Sigurður Þórisson. Á eftir er hressing og tækifæri til að hitta vini og kunningja og kynnast nýju fólki. Sunnudagaskóli verður á sama tíma í umsjá Hólmfríðar S. Jónsdóttur og Bryndísar Svavarsdóttur. Stuttur




