Lestur Passíusálma á föstudaginn langa kl. 17-18
Valdir Passíusálmar verða lesnir á föstudaginn langa, 18. apríl, kl. 17-18. Á milli lestranna leikur tónlistarstjóri kirkjunnar gömlu lagboða sálmanna á ýmis hljóðfæri m.a. orgel, saxófón og klarinett.
Hátíðarmessa á páskadag kl. 11:00 og sunnudagaskóli
Hátíðarmessa verður á páskadag, 20. apríl, kl. 11:00. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra kirkjunnar. Ólöf Inger Kjartansdóttir syngur einsöng. Hermann Erlingsson verður meðhjálpari. Prestur er sr. Kjartan Jónsson Hressing og samfélag á eftir. Sunnudagaskóli á sama tíma í umsjá Bryndísar Svavarsdóttur. Páskaegg verða í hverju horni.
Hátíðarguðsþjónusta á páskadag kl. 11:00 og sunnudagaskóli
Hátíðarguðsþjónusta verður á páskadag, 20. apríl, kl. 11:00. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra. Ólöf Inger Kjartansdóttir syngur einsöng. Meðhjálpari er Hermann Erlingsson Prestur er sr. Kjartan Jónsson Sunnudagaskóli á sama tíma. undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur og Bryndísar Svavarsdóttur Páskaegg verður að finna í hverju horni!
ROKKmessa sunnudaginn 13.apríl kl.20:00 í Víðistaðakirkju
Flutt verða klassísk rokklög flest með íslenskum lofgjörðatextum eftir þá sr.Guðmund Karl Brynjarsson og sr.Gunnar Sigurjónsson sem hljómsveitir eins og Led zeppelin, Kiss, U2, Janis Joplin og AC/DC hafa gert fræg. Sérstakir gestir verða söngvararnir Páll Rósinkranz og Áslaug Helga Hálfdánardóttir. Kór Ástjarnarkirkju syngur með undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar tónlistarstjóra kirkjunnar. Einsöngvarar úr
Sunnudagaskóli 13. apríl kl. 11
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað kl. 11. Páskarnir verða undirbúnir með páskaföndri og bingói.
Fermingar laugardaginn 5. apríl kl. 11 og 13:30
Tvær fermingarathafnir verða á vegum Ástarnarsafnaðar laugardaginn 5. apríl, kl. 11:00 og kl. 13:30. Báðar athafnirnar fara fram í Víðistaðakirkju. Þessi börn verða fermd:






