Sumarfrí í júlí
Helgihald Ástjarnarkirkju fellur niður í júlí og fram í miðjan ágúst. Fyrsta guðsþjónusta eftir sumarfrí verður 24. ágúst
Helgistund sunnudaginn 29. júní kl. 11:oo
Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir héraðsprestur og nýkjörinn sóknarprestur Laugarnesskirkju mun leiða helgistund kl. 11:00 sunnudaginn 29. júní. Stefán H. Henrýsson leiðir tónlistina. Meðhjálpari verður Sigurður Þórisson. Heitt á könnunni og samfélag á eftir. Þetta verður síðasta helgistund fyrir sumarfrí.
Helgistund í Ástjarnarkirkju sunnudaginn 22. júní kl: 11:00
Sunnudaginn 22. júní verður helgistund í Ástjarnarkirkju kl: 11:00. Sr. Ragnar Gunnarsson þjónar og Stefán H. Henrýsson leiðir tónlistina. Samfélag og kaffisopi eftir stundina, allir hjartanlega velkomnir.
Hjólreiðamessa 15. júní kl. 10:00
Hjólreiðamessa í kirkjum Hafnarfjarðar og Garðabæjar sunnudaginn 15. júní. Hjólað verður á milli kirknanna og áð í stutta stund á hverjum stað. Lagt verður upp frá Ástjarnarkirkju og Vídalínskirkju: Kl. 10:00 Ástjarnarkirkja Kl. 10:00 Vídalínskirkja Kl. 10:30 Hafnarfjarðarkirkja Kl. 10:50 Fríkirkjan Kl. 11:20 Víðistaðakirkja Kl. 11:50 Garðakirkja Kl. 12:30 Bessastaðakirkja Hægt er að hjóla
Starfsmaður í æskulýðsstarfi óskast frá 1. september
Ástjarnarkirkja óskar eftir að ráða aðstoðarmann í barna- og æskulýðsstarfi kirkjunnar frá 1. september nk. Starfið felst í aðstoð við starf 6-9 ára og 10-12 ára, auk þess að byggja upp starf fyrir unglinga 14 ára og eldri. Gerð er krafa um menntun á sviði guðfræði og reynslu af æskulýðsstarfi. Nánari upplýsingar veitir Kjartan
Helgistund á hvítasunnudag, 8. júní kl. 11:00
Sr. Kristín Þórunn Tómasdóttir héraðsprestur og nýkjörinn sóknarprestur Laugarnesskirkju mun leiða helgistund kl. 11:00 á hvítasunnudag. Matthías V. Baldursson tónlistarstjóri kirkjunnar leiðir tónlistina. Meðhjálpari verður Hjalti Skaptason. Heitrt á könnunni og samfélag á eftir.






