g
Loading...
News2025-11-18T19:57:19+00:00

502, 2015

Tímamót í Ástjarnarsókn

Tímamót urðu í sögu Ástjarnarsóknar í dag, fimmtudaginn 5. febrúar, þegar Geir Jónsson formaður sóknarnefndar og Þorvarður Lárus Björgvinsson framkvæmdastjóri Arkís arkitekta, undirrituðu samning um hönnun safnaðarheimlis. Viðstaddir voru fulltrúar byggingarnefndar, sóknarprestur og Björn Guðbrandsson hönnuður vinningstillögu hönnunarsamkeppni kirkjunnar. Á myndinni handsala Geir formaður og Björn hönnuður samninginn með Þorvarð framkvæmdastjóra á milli sín.

1201, 2015

Sr. Kjartan er í fríi til 26. janúar

Sr. Kjartan Jónsson sóknarprestur Ástjarnarsóknar verður í fríi til 26. janúar. Þeim sem þurfa á þjónustu prests að halda er bent á sr. Halldór Reynisson settan sóknarprest Víðistaðasóknar. Síminn hjá honum er 824 1282

701, 2015

Safnaðarheimili Ástjarnarkirkju

Fimmtudagurinn 11. desember var mikill gleðidagur í Ástjarnarkirkju og verður lengi í minnum hafður.Þá voru þrjár af 11 tillögum sem bárust í samkeppni um hönnun safnaðarheimilis fyrir söfnuðinn og umhverfis þess verðlaunaðar. Bæjarstjóri Hafnarfjarðar og fulltrúar úr bæjarstjórn og frá ýmsum stofnunum bæjarins voru viðstaddir ásamt prestum í kirkjum Hafnarfjarðar, vinningshöfum, sóknarnefnd Ástjarnarkirkju, byggingarnefnd, dómnefnd og starfsfólki. Mikil eftirvænting

1612, 2014

Dagskrá Ástjarnarkirkju um jólin

Sunnudagaskóli 21. desember kl. 11:00 Jólin og boðskapur þeirra verða í fyrirrúmi. Mikið verður sungið og í lok stundarinnar verður kíkt í poka jólasveinsins. Umsjón Bryndísar Svavarsdóttir og Hólmfríðar S. Jónsdóttur. Hressing og samfélag á eftir. Gospelmessa 21. desember kl. 20:00 Síðasta gospelmessa ársins verður í Ástjarnarkirkju sunnudaginn 21. desember kl. 20:00. Kór Ástjarnarkirkju syngur

2711, 2014

Lofgjörðarkvöld föstudaginn 28.nóvember

Föstudagskvöldið 28.nóvember verður lofgjörðarkvöld hjá okkur í kirkjunni kl.20:00. Þessi kvöld byggjast mest upp á kröftugri tónlist sem Matthías V. Baldursson tónlistarstjóri kirkjunnar leiðir ásamt lofgjörðarhópi kirkjunnar og hljómsveit skipur þeim Friðriki Karlssyni á gítar, Þorbergi Ólafssyni á slagverk, Elvari Bragasyni á gítar og Matthíasi V. Baldurssyni á píanó og bassa. Sérstakur gestur verður rithöfundurinn

Go to Top