Æfingar hjá Barna og Unglingagospelkór hefjast mánudaginn 11.jan
Barnakórinn æfir kl.15:00 - 15:45 og Unglingagospelkórinn æfir kl.16:00 - 17:00. Allir áhugasamir krakkar og unglingar eru hjartanlega velkomnir að koma og kíkja við á æfingu. Barnakórinn er skipaður börnum frá 1 - 7.bekk grunnskóla, stjórnandi er Matthías Baldursson. Unglingakórinn er skipaður krökkum frá 7 - 10 .bekk. Stjórnandi er Áslaug Helga Hálfdánardóttir.
Messa og sunnudagaskóli 10. janúar kl. 11:00
Fyrsta messan 2016 verður sunnudaginn 10. janúar kl. 11:00. Kór kirkjunnar mun syngja undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Sigurður Þórisson verður meðhjálpari og prestur Kjartan Jónsson. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur.
Kirkjuhlaup Hauka 2015
Árlegt kirkjuhlaup Hauka var haldið á annan í jólum í Ástjarnarkirkju. Það var betur sótt en nokkru sinni fyrr og vel á annað hundrað manns tóku þátt og komust færri að en vildu inn í kirkjuna. Þar var haldin helgistund áður en haldið var í hlaupið. Í lok hennar var kirkjunni færð falleg mynd
Dagskrá kirkjunnar í desember
29.nóvember (fyrsti sunnud.í aðventu) - Messa kl.11:00 Fyrsti sunnud.í aðventu. Messa kl.11:00 í Ástjarnarkirkju. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Matthíasar Baldurssonar. Sr.Hulda Hrönn Helgadóttirleiðir stundina. Kaffi og með því eftir stundirnar. Allir hjartanlega velkomnir. 29. nóvember – Jólaföndur sunnudagaskólans kl.11:00 Hið árlega jólaföndur sunnudagaskólans þar sem gestum gefst kostur á að undirbúa komu jólanna með því að
Byggingarmessa og fyrsta skóflustunga 15. nóvember kl. 11
Byggingarmessa verður haldin í Ástjarnarkirkju kl. 11:00 í tilefni af því að byggingarframkvæmdir að nýju safnaðarheimili eru að hefjast. Kór Ástjarnarkirkju mun syngja undir stjórn Matthíasar V. Baldurssonar. Fulltrúar sóknarnefndar og byggingarnefndar lesa ritningarlestra, sr. Þórhildur Ólafs, prófastur Kjalarnessprófastsdæmis prédikar, Sr. Kjartan Jónsson þjónar fyrir altari og meðhjálpari verður Sigurður Þórisson. Að lokinni messu
Safnaðarheimili Ástjarnarkirkju verður reist
Stór var dagur í sögu Ástjarnarkirkju miðvikudaginn 21. október þegar sóknarnefndin samþykkti einróma að taka tilboði S. Þ. verktaka í byggingu safnaðarheimilis kirkjunnar. Þetta er stórt skref til framtíðar og mun skapa starfi safnaðarins verðuga umgjörð. Byggingarframkvæmdirnar hefjast fljótlega. Fyrsta skóflustunga verður tekin við hátíðlega athöfn eftir guðsþjónustu 15. nóvember.






