Leonard Cohen messa 26. nóvember kl. 17:00
Það er skemmtileg nýbreytni að geta boðið upp á messu með lögum Leonards Cohens. Hann mörgum að góðu kunnur fyrir sín vinsælu lög eins og t.d. Hallelujah. Kór kirkjunnar syngur lögin undir stjórn Keiths Reed og hljómsveitar sem skipa auk hans Greta Salóme sem leikur á fiðlu, Þorbergur Ólafsson á slagverk og Þórir Rúnar
Kristniboðsmessa 12. nóvember kl. 11:00
Annar sunnudagur í nóvember ár hvert er kristniboðsdagur Þjóðkirkjunnar. Í tilefni af því mun Kristján Þór Sverrisson kristniboði prédika í messunni sunnudaginn 12. nóvember kl. 11:00 og segja frá starfi Kristniboðssambandsins. Sunnudagaskólinn verður á sama tíma eins og venjulega undir stjórn Hólmfríðar S. Jónsdóttur.
Fermingarbörn ganga í hús og safna fyrir Hjálparstarf kirkjunnar
Fermingarbörn Ástjarnarkirkju munu ganga í hús á Völlunum og í Áslandinu 7. nóvember kl. 17-19. Þau verða með bauka frá Hjálparstarfi kirkjunnar og gefa fólki kost á að styðja starf stofnunarinnar við að bæta aðgang fólks að góðu vatni í Afríku. Ég hvet fólk til að taka vel á móti fermingarbörnunum.
Fjölskylduguðsþjónusta 5. nóvember kl. 11:00
Það verður skemmtileg fjölskylduguðsþjónusta í kirkjunni 5. nóvember kl. 11:00. Báðir kórar safnaðarins, barnakórinn og kirkjukórinn, munu syngja undir stjórn Keiths Reed. Fræðslan verður í umsjá Hólmfríðar S. Jónsdóttur og Arnórs Bjarka Blomsterberg. Sr. Kjartan Jónsson stjórnar stundinni. Gott samfélag og hressing á eftir.
Bleik messa 15. október kl. 11:00
Í til efni af degi bleiku slaufunnar, átaks Krabbameinsfélagsins gegn krabbameinum kvenna verður messan 15. október tileinkuð þessu málefni. Kór kirkjunnar mun syngja undir stjórn Keiths Reed, sr. Kjartan Jónsson prédika og þjóna fyrir altari með aðstoð Sigurðar Þórissonar meðhjálpara. Sunnudagaskólinn verður á sínum stað á sama tíma.
Mikill gleðidagur
Biskup Íslands, frá Agnes M. Sigurðardóttir, vígði nýtt safnaðarheimili Ástjarnarsóknar sunnudaginn 8. október. Þetta var mikill gleðidagur og fljölmenni var í messunni. Guðni Gíslason ritstjóri Fjarðarfrétta tók fínar myndir sem gefur að líta á vef blaðsins. Hægt er að sjá þær á Fésbókarsíðu Ástjarnarkirkju.







