Fjölskylduguðsþjónusta og ratleikur sunnudaginn 13.maí kl. 11:00
Á sunnudaginn verður fjölskylduguðsþjónusta kl 11:00. Barnakór kirkjunnar syngur og starfsfólk kirkjunnar annast fræðslu. Á eftir guðsþjónustu verður keppt í ratleik (liðakeppni). Liðaskipan er frjáls, börn á móti foreldrum, fjölskyldur á móti fjölskyldum, strákar á móti stelpum eða hvernig sem fólk vill. Einn í hverju liði þarf að hafa snjallasíma. Áætluð tímalengd ratleiks er
Fermingarmessa 29. apríl kl. 11:00
Í fermingarguðsþjónustunni 29. apríl kl. 11:00 verða tveir bræður fermdir, Hermann Ingi og Kristján Hrafn Stefánssynir. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Keiths Reed. Meðhjálpari verður Sigurður Þórisson og prestur sr. Kjartan Jónsson.
Fjölskylduguðsþjónusta 22. apríl kl. 11:00
Fjölskylduguðsþjónusta verður í Ástjarnarkirkju sunnudaginn 22. apríl kl. 11:00. Báðir kórar kirkjunnar, barnakórinn og kirkjukórinn, munu syngja undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Arnór Bjarki Blomsterberg æskulýðsfulltrúi annast fræðsluna. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Hressing og samfélag á eftir.
Messa og sunnudagaskóli 15. apríl
Sunnudaginn 15. apríl verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00 Báðir kórar kirkjunnar syngja, kirkjukórinn og barnakórinn, undir stjórn tónlistarstjórans okkar Keiths Reed. Hólmfríður S. Jónsdóttir annast fræðsluna og prestur verður sr. Kjartan Jónsson. Hressing og samfélag á eftir.
Messa og sunnudagaskóli 8. apríl kl. 11:00. Gleðidagar
Tíminn fram að hvítasunnu er kallaður gleðidagar. Þá eigum við að íhuga allt sem páskarnir færa okkur og einblína á það sem getur glatt okkur. Messa verður kl. 11:00 eins og venjulega. Keith Reed stjórnar tónlistinni. Prestur er sr. Kjartan Jónsson og meðhjálpari Sigurður Þórisson. Sunnudagaskóli er á sama tíma undir stjórn Hólmfríðar S.
Guðsþjónusta á páskadag kl. 8:00 og morgunverður
Sú nýbreytni verður tekin upp um páskana að guðsþjónustan á páskadag verður kl. 8:00 að morgni. Gleðin verður í fyrirrúmi og söngur og tónlist í fyrirrúmi. Stundin er fyrir alla fjölskylduna. Á eftir verður boðið upp á góðan morgunmat og börnin fá að mála páskaegg.







