Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 4.nóvember klukkan 11:00
Fjölskylduguðsþjónusta verður í Ástjarnarkirkju næstkomandi sunnudag, 4.nóvember klukkan 11:00. Við ætlum að vera í stuði, fyrst og fremst. Í stuði með Guði, og mörgum fleirum! Messukaffi, kex og gott samfélag á eftir. Verið hjartanlega velkomin!
Svavar Knútur heimsækir eldri borgara 7. nóvember kl. 13:30
Hinn ástæli trúbadúr Svavar Knútur verður gestur eldri borgara Ástjarnarkirkju miðvikudaginn 7. nóvember kl. 13:30. Hann mun miðla fróðleik og reynslu og syngja fyrir okkur. Allir hjartanlega velkominir"
Sr. Arnór Bjarki settur í embætti í Kálfatjarnarkirkju 11. nóvember kl. 11:00
Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg nýr prestur í Tjarnaprestakalli (Ástjarnarkirkja og Kálfatjarnarkirkja) verður settur formlega í embætti prests í prestakallinu 11. nóvember kl. 11:00. Messan verður í Kálfatjarnarkirkju en síðan verður veislukaffi á eftir. Það er mikið fagnaðarefni og langþráður draumur að fá viðbótarprest í þetta fjölmenna prestakall. Öll sóknarbörn Ástjarnarsóknar og Kálfatjarnarsóknar eru hvött
Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 21. október kl. 11:00
Sr. Jakob Ágúst Hjálmarsson sóknarprestur emeritus mun annast guðsþjónustuna þennan dag. Ásamt honum munu báðir kórar kirkjunnar, barnakórinn og kirkjukórinn, syngja undir stjórn Keiths Reed. Sunnudagaskóli verður á sama tíma undir stjórn Bjarka Geirdal Guðfinnssonar. Hressing og samfélag á eftir. Sr. Arnór Bjarki er á haustmóti æskulýðsfélaga Þjóðkirkjunnar austur á
Fjölskylduhátíð Þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði og Garðabæ
Fjölskylduhátíð Þjóðkirkjunnar í Hafnarfirði og Garðabæ verður haldin í Víðistaðakirkju sunnudaginn 7.október klukkan 11:00. Við í Ástjarnarkirkju stefnum á að hittast í kirkjunni klukkan 11:00 og sameinast í bíla, eins og hægt er klukkan 11:15 og halda þá af stað í Víðistaðakirkju. Þetta stefnir í hörkuskemmtun; hoppukastalar, söngleikur, barnakórar, andlitsmálning, pulsur, blöðrulistamenn og margt
Messa í Ástjarnarkirkju sunnudaginn 23.september 2018
Messa verður í Ástjarnarkirkju, sunnudaginn 23. september klukkan 11:00. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn tónlistarstjórans Keith Reed. Prestur: Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg. Sunnudagaskóli verður á sama tíma undir stjórn Bjarka Geirdals. Kaffi, djús og kex í góðu samfélagi eftir messu. Verið öll hjartanlega velkomin!







