Sunnudagaskóli Ástjarnarkirkju 9. desember kl. 11:00
Sunnudagaskólinn verður á sínum stað kl. 11:00 sunnudaginn 9. desember undir stjórn Bjarka Geirdal Guðfinnssonar.
Fjölskylduguðsþjónusta 2. desember kl. 11:00
Aðventan hefst sunnudaginn 2. desember. Það er nýjársdagur í kirkjuárinu. Þá verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Kveikt verður á fyrsta kertinu á aðventukransinum. Barnakór kirkjunnar syngur. Bjarki Geirdal og sr. Arnór Bjarki annast fræðsluna. Hressing og samfélagsefling á eftir.
Gaflarakórinn kemur í heimsókn 25. nóvember
Við fáum Gaflarakórinn í heimsókn í messu sunnudaginn 25. nóvember kl. 11:00. Hann verður í hlutverki kirkjukórs. Stjórnandi hans er Kristjana Þórdís Ásgeirsdóttir. Keith Reed tónlistarstjóri kirkjunnar annast undirleik og prestur verður sr. Kjartan Jónsson. Félagar úr starfi eldri borgara kirkjunnar lesa ritningarlestra. Sunnudagaskóli á sama tíma eins og venjulega undir stjórn Bjarka Geirdal Guðfinnssonar.
Eldri borgarar gefa kirkjunni
Eldri borgarar Ástjarnarkirkju bera mikla umhyggju fyrir kirkjunni sinni. Þeir hafa fært henni tvær höfðinglegar gjafir, nauðsynleg tæki í eldhúsið, annars vegar uppþvottavél og hins vegar eldavél sem hjónin Hallgrímur Gísli Friðfinnsson og Anna Lísa Jóhannesdóttir gáfu. Hjartans þakkir!
Messa og sunnudagaskóli 18. nóvember kl. 11:00
Eins og venjulega verður messa kl. 11:00 á sunnudaginn. Rætt verður um kristniboð en árlegur kristniboðsdagur Þjóðkirkjunnar var 11. nóvember. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Keiths Reed. Prestur er sr. Kjartan Jónsson Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Bjarka Geirdal Guðfinnssonar Hressing og samfélag á eftir.
Bíó hjá eldri borgurum 21. nóvember kl. 13:30
Helga Margrét Guðmundsdóttir kemur í heimsdókn og sýnir stuttmyndina Að fægja silfrið. Mikilvægi félagslegrar virkni eldri borgara. Samveran hefst með kaffi og spjalli eins og venjulega og endar með stuttri helgistund.







