Síðdegisguðsþjónusta, Mála mitt líf, sunnudaginn 24. febrúar kl. 17:00
24. febrúar kl. 17:00 verður lofgjörðar- og íhugunarguðsþjónusta. Sungnir verða fleiri sálmar en í venjulegri messu. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed. Sigurbjörn Þorkelsson, sem markir þekkja fyrir skrif sín í Morgunblaðinu, mun lesa úr bókum sínum og hafa stutta hugleiðingu í lokin. Sr. Kjartan Jónsson leiðir stundina. Á eftir býður kórinn upp
Fjölskylduguðsþjónusta sunnudaginn 3. febrúar kl. 11:00
Fyrsta hvers mánaðar er yfirleitt fjölskylduguðsþjónusta í Ástjarnarkirkju. Sunnudaginn 3. febrúar kl. 11:00munu báðir kórar kirkjunnar syngja, barnakórinn og kirkjukórinn, undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Bjarki Geirdal Guðfinnsson sunnudagaskólakennari annast fræðslu. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Hressing og samfélag á eftir.
Starf kirkjuvarðar laust til umsóknar
Ástjarnarkirkja Kirkjuvörður Sóknarnefnd Ástjarnarsóknar auglýsir eftir kirkjuverði við Ástjarnarkirkju í a.m.k 70% starf. Um er að ræða krefjandi, skemmtilegt og metnaðarfullt framtíðarstarf. Í starfinu felst m.a. dagleg umsjón með húsnæði sóknarinnar, umsjón með viðburðum og innkaup. Sömuleiðis aðstoð við helgihald og safnaðarstarf, létt viðhaldsvinna, ræsting og þrif. Og önnur tilfallandi verkefni í samstarfi við
Ljós í myrkri sunnudaginn 27. janúar kl. 17:00
Lofgjörðar og bænastund með miklum söng verður sunnudaginn 27. janúar kl. 17:00. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Sunnudagaskóli fellur niður.
Bingó fyrir innanstokksmunum í Ástjarnarkirkju
Eldriborgarar Ástjarnarkirkju bjóða til fjáröflunarbingós til kaupa á búnaði í eldhús kirkjunnar laugardaginn 26. janúar kl. 14-16. Glæsilegir vinningar! 1 spjald á 1.000 kr. 2 spjöld á 1.500 kr. 3 spjöld á 2.000 kr. Kaffihús í hléi Posi á staðnum Öll fjölskyldan velkomin Þetta er frábært tækifæri til að sameina góða skemmtun og styrkja
Ókeypis markþjálfun í Ástjarnarkirkju
Ástjarnarkirkja býður upp á ókeypis markþjálfun. Ýmsir sem tekið hafa grunnnámskeið í markþjálfun þurfa að taka viðtöl við fólk og safna sér tímum til að öðlast réttindi til að fara á framhaldsnámskeið. Margt af þessu fólki er mjög fært í faginu. Nokkrir í þessum sporum og aðrir sem eru þegar komnir með framhaldsgráðu, en vilja







