Ástjarnarkirkja býður upp á ókeypis markþjálfun.
Ýmsir sem tekið hafa grunnnámskeið í markþjálfun þurfa að taka viðtöl við fólk og safna sér tímum til að öðlast réttindi til að fara á framhaldsnámskeið. Margt af þessu fólki er mjög fært í faginu. Nokkrir í þessum sporum og aðrir sem eru þegar komnir með framhaldsgráðu, en vilja ná enn lengra, vilja láta gott af sér leiða.

Markþjálfun hjálpar fólki að hugsa skýrt t.d. að koma auga á leiðir til að ná markmiðum sínum og takast á við ýmis vandamál. Hún er þó ekki meðferð og kemur ekki í staðinn fyrir störf sálfræðinga eða annarra meðferðaraðila.

Það er mjög ánægjulet að geta boðið sóknarbörnum þetta frábæra tilboð og hvetjum við ykkur til að nýta tækifærið því að svona viðtöl kosta yfirleitt talsverðan pening.

Hvað er markþjálfun? Nánari útskýring:

Markþjálfun er fyrir fólk sem vill ná auknum árangri og auka skilvirkni. Markþjálfun er aðferðafræði sem er til þess fallin að hjálpa einstaklingum að öðlast skýrari framtíðarsýn og hvernig þeir geti nýtt styrkleika sína til að raungera þá sýn. Markþjálfun er samræðuferli þar sem vitundarsköpun markþegans leiðir til nýrra lausna og tækifæra. Markþjálfun á rætur sínar að rekja í ýmsa fræðigreina, m.a. leiðtogafræði, sálfræði, félagsfræði, taugavísindi og kennslufræði.

Markþjálfi er ekki ráðgefandi heldur leggur áherslu á að viðmælandinn leiti sjálfur lausna á hverju máli sem tekið er fyrir. Markþjálfinn heldur hins vegar utan um ferlið og leiðir fólk að kjarna málsins.

Markþjálfun er eins og púsluspil þar sem megintilgangurinn er að leggja nokkur púsl á hverjum fundi þar til heildarmyndin er skýr. Sú mynd er í flestum tilvikum ný, fersk og kraftmikil, þar sem búið er að breyta draumum og væntingum í skýr markmið með tilheyrandi mótun aðgerða.

Ástæðan fyrir að markþjálfun hefur fest sig í sessi á undanförnum árum er einfaldlega sú að hún skilar árangri. Þeir sem notið hafa góðrar markþjálfunar, hvort sem er í störfum sínum eða einkalífi segja hana framúrskarandi tæki til að ná markmiðum og breyta hegðun eða einfaldlega að hugsa lífið upp á nýtt.

Þeir sem vilja nýta sér þetta frábæra tilboð setji sig í samband við Kjartan Jónsson, sóknarprest.