Fermingarhátíð Þjóðkirkjusafnaðanna í Hafnarfirði og Garðabæ 28. janúar kl. 17-22
Söfnuðir Þjóðkirkjunnar efna til hátíðar fyrir fermingarbörn sem haldin verður í þremur kirkjum, Vídalínskirkju, Hafnarfjarðarkirkju og Víðistaðakirkju. Vandað er til dagskrár og börnunum verður ekið á milli kirkna í rútum.
Fjölskylduguðsþjónust 14. janúar kl. 11:00
Sunnudaginn 14. janúar verður fjölskylduguðsþjónusta kl. 11:00. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Hólmfríður S. Jónsdóttir annast fræðslu. Sr. Kjartan Jónsson leiðir stundina.
Almennur safnaðarfundur Ástjarnarsóknar 10. janúar kl. 17:00
Boðað er til almenns safnaðarfundar í Ástjarnarsókn miðvikudaginn 10. janúar 2018 kl 17.00 í safnaðarheimilinu Kirkjuvöllum 1. Dagskrá: Kosning Kjörnefndar Ástjarnarsóknar. Kjörnefnd kýs presta, biskupa og leikmenn sem sitja á kirkjuþingi. Sóknarnefnd
Aðventuhátíð 10. desember kl. 11:00
Árleg aðventuhátíð Ástjarnarkirkju verður sunnudaginn 10. desember kl. 11:00. Báðir kórar kirkjunnar, kirkjukórinn og barnakórinn syngja. Barnakórin flytur söngleikurinn Draumur trjánna en lögin eru eftir tónlistarstjóra kirkjunnar Keith Reed. Sögumaður er Björgvin Franz Gíslason leikari. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Hressing og samfélag á eftir.
Leikrit um Lúther í Ástjarnarkirkju 2. des. kl. 16:00
Laugardaginn 2. desember kl. 16:00 mun Stoppleikhópurinn sýna nýtt leikrit um Lúther í Ástjarkirkju. Verkið fjallar um æskuár Lúthers og hvers vegna hann setti fram gagnrýni á kaþólsku kirkjuna sem á þeim tíma þótti óhugsandi. Valgeir Skagfjörð er höfundur leikritsins og leikstjóri. Leikritið er ætlað fullorðnum og eldri börnum tekur eina og hálfa klukkustund







