Starf eldri borgara Ástjarnarkirkju. Kynningarfundur 19. september kl. 13:30
Starf eldri borgara Ástjarnarkirkju verður kynnt í kirkjunni miðvikudaginn 19. september kl. 13:30. Sérstakur gestur verður Valgerður Sigurðardóttir formaður Félags eldri borgara í Hafnarfirði sem mun fjalla um málefni eldri borgara. Allir velkomnir. Hér gefst kjörið tækifæri til að kynnast nýju og góðu fólki.
Messa og sunnudagaskóli 16. september kl. 11:00
Kór Ástjarnarkirkju mun syngja í messunni sunnudaginn 16. september undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Prestur verður sr. Kjartan Jónsson. Fermingarbörn og aðstandendur þeirra eru boðin sérstaklega velkomin. Hressing og samfélag á eftir. Stuttur fundur um fermingarstörfin á eftir. Sunnudagaskólin verður á sama tíma. Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg og Bjarki Geirdal Guðfinnsson munu verða í
messa 9. september kl. 11:00
Sunnudaginn 9. september verður messa kl. 11:00 Kór kirkjunnar mun syngja undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Prestur er Sr. Kjartan Jónsson. Við fögnum fermingarbörnum og fjölskyldum þeirra. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Bjarka Geirdals Guðfinnssonar. Hressing og gott samfélag á eftir.
Starf haustmisseris er hafið
Starf haustmisseris Ástjarnarkirkju er hafið. Það hófst með fermingarnámskeiði í ágúst. Fyrsta messan var 2. september en þá var nýr prestur sr. Arnór Bjarki Blomsterberg boðinn velkominn starfa. Nýr starfsmaður í sunnudagaskóla tók til starfa þennan dag, Bjarki Geirdal Guðfinnsson guðfræðinemi. Unglingastarfið hófst mánudaginn 3. september en unglingarnir hittast á mánudögum kl. 20:00. Margt
Helgistund 17. júní kl. 11:00
Helgistund verður í kirkjunni kl. 11:00 á 17. júní. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Arnór Bjarki Blomsterberg guðfræðingur og æskulýðsfulltrúi Ástjarnarkirkju leiðir stundina og prédikar. Hressing og samfélag á eftir.
Hjólreiðamessa 24. júní kl. 10 – 12:20
Eins og undanfarin ár bjóða Þjóðkirkjusöfnuðirnir í Hafnarfirði og Garðabæ upp á sameiginlega hjólreiðamessu sunnudaginn 24. júní. Messan hefst samtímis í Ástjarnarkirkju og Vídalínskirkju. Allir eru hvattir til að taka þátt. Þetta er upplagður hjólatúr fyrir fjölskylduna. Dagskráin er svona: kl. 10:00 Ástjarnarkirkja. Upphafsbæn – sálmur kl. 10:00 Vídalínskirkja. Upphafsbæn – sálmur kl. 10:30







