Messa sunnudaginn 25. maí kl. 11:00
Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Hressing og gott samfélag á eftir.
Messa og sunnudagaskóli 5. maí kl. 11:00
Messa og sunnudagaskóli verða sunnudaginn 5. maí kl. 11:00 Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Prestur er sr. Kjartan Jónsson sem mun m.a. fjalla um gleðidagana í prédikun sinni. Hressing og samfélag á eftir. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Bjarka Geirdal Guðfinnssonar guðfræðinema. Þetta verður síðasta samvera sunnudagskólans en eftir viku,
Messa og sunnudagaskóli 28. apríl kl. 11:00
Sunnudaginn verður messa kl. 11:00. Þemað í kirkjunni fram að hvítasunnu er gleðin yfir upprisunni og því er þetta tímabil kallað gleðidagar. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Keiths Reed tónlistarstjóra. Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg annast prestsþjónustuna. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Bjarka Geirdal Guðfinnssonar.
Lestur Passísálma í Kálfatjarnarkirkju á föstudaginn langa kl. 14:00
Ástjarnarkirkja og Kálfatjarnarkirkju mynda prestakallið Tjarnaprestakall sem prestarnir sr. Kjartan Jónsson og sr. Arnór Bjarki Blomsterberg þjóna. Boðið verður upp á lestur 10 Passíusálma í Kálfatjarnarkirkju kl. 14:00 á föstudaginn langa, 19. apríl. Gömlu lagboðar Passíusálmarnir verða leiknir á orgel kirkjunnar á milli lestra.
Hátíðarguðsþjónusta kl. 8:00 á páskadag og morgunverður á eftir
Á páskadag, sunnudaginn 21. apríl kl. 8:00, bjóðum við upp á hátíðarguðsþjónustu þar sem Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Keiths Reed og sr. Kjartan Jónsson annast prestsþjónustuna. Á eftir verður kirkjugestum boðið í góðan páskamorgunverð. Við hvetjum sóknarbörn til að fjölmenna og gleðjast með okkur. Enginn sunnudagaskóli verður þennan dag.






