Myndband frá aftansöng á aðfangadag
Aftansöngur á aðfangadag klukkan 17:00. Hátíðatónn sr. Bjarna Þorsteinssonar sunginn. Tveir kórar syngja í guðsþjónustunni, barnakór Ástjarnarkirkju undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar og kór undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg. Davíð og Sveinn Arnar Sæmundsson annast undirleik. Prestar Ástjarnarkirkju, sr. Arnór Bjarki Blomsterberg og sr. Kjartan Jónsson sjá um prestsþjónustuna.
Aftansöng á aðfangadag og gamlársdag verður streymt
Vegna mikillar aukningar smita í kórónufaraldrinum verður aftansöng á aðfangadag og gamlársdag eingöngu streymt kl. 17:00 báða dagana. Því miður verða engar guðsþjónustur í kirkjunni yfir hátíðarnar. Hægt verður að horfa á guðsþjónusturnar næstu daga á eftir. 24. desember, aðfangadagur jóla: Aftansöngur klukkan 17:00. Hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar sungið. Tveir kórar syngja í guðsþjónustunni,
Helgistund á aðventu 19. des. kl. 17:00
19. desember er fjórði sunnudagur í aðventu. Þá verður helgistund í kirkjunni kl. 17:00, Davíð Sigurgeirsson leiðir tónlistina og sr. Arnór Bjarki Blomsterberg annast prestsþjónustuna og hugleiðir umfjöllunarefni aðventunnar.
Aðventuguðsþjónusta 12. desember kl. 17:00
Sunnudaginn 12. desember kl. 17:00 verður aðventuguðsþjónusta í kirkjunni á 3. sunnudagur í aðventu. Davíð Sigurgeirsson leiðir tónlistina og Melkorka Rós sönginn. Prestur er sr. Kjartan Jónsson.
Aðventuguðsþjónusta 5. desember kl. 17:00
Aðventuguðsþjónusta verður sunnudaginn 5. desember kl. 17:00. Þetta er annar sunnudagur í aðventu. Davíð Sigurgeirsson stjórnar tónlistinni og söngfólk leiðir messusönginn. Jólalögin verða sungin og boðskapur aðventunnar íhugaður. Prestur er sr. Kjartan Jónsson.
Fjölskylduguðsþjónusta 21. nóvember kl. 17:00
Barnakór kirkjunnar syngur undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar tónlistarstjóra. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Guðsþjónustunni verður streymt á Fésbókarsíðu Ástjarnarkirkju.






