g
Loading...
News2025-11-18T19:57:19+00:00

3003, 2022

Fermingarmessa laugardaginn 2. apríl – engin messa 3. apríl

Seinni aðalfermingarmessa Ástjarnarkirkju verður laugardaginn 2. apríl kl. 11:00 er 14 ungmenni verða fermd. Davíð Sigurgeirsson leiðir tónlistina og annast undirleik ásamt Þórði Sigurðarsyndi. Sönghópur Davíðs leiðir sönginn. Prestar eru sr. Kjartan Jónsson og sr. Arnór Bjarki Blomsterberg. - Engin guðsþjónusta verður sunnudaginn 3. apríl en allir eru velkomnir í fermingarmessuna.

403, 2022

Æskulýðsguðsþjónusta 6. mars kl. 17:00

Árlegur æskulýðsdagur Þjóðkirkjunnar er 6. mars. Guðsþjónustur dagsins eru helgaðar börnum og unglingum. Sr. Sigurður Már Hannesson æskulýðsprestur sem stjórnar unglingastarfi Ástjarnarkirkju verður ræðumaður dagsins. Sr. Arnór Bjarki Blomsterberg þjónar fyrir altari. Barnakór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Davíðs Sigurgeirssonar.

402, 2022

Íslenskunámskeið fyrir útlendinga 15. febrúar/Course in the Icelandic language 15th February

(English below) Ástjarnarkirkja í Hafnarfirði býður upp á ókeypis íslenskunámskeið fyrir útlendinga, nýbúa og flóttamenn. Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:45 – 19:15. Námskeiðið hefst 15. febrúar og stendur í 13 vikur. Staður: Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði. Skráning: kjartan.jonsson@kirkjan.is. Ástjarnar-Church in Hafnarfjörður offers a course in the Icelandic language twice a

1101, 2022

Helgihald Ástjarnarkirkju færist á netið í janúar

Kæru sóknarbörn. Vegna mikilla covid-smita í samfélaginu mun hefðbundið safnaðarstarf liggja niðri næstu vikurnar, þ. e. hefðbundnar guðsþjónustur, eldriborgarastarf og bænastundir. Stuttum helgistundum verður streymt á messutíma á Fésbókar- og heimasíðum kirkjunnar. Unglingastarf og fermingarfræðsla verður á Teams. Hægt verður að hafa samband við prestana eins og áður.  

Go to Top