Skráning fyrir fermingar 2014 er hér á síðunni
Skráning fyrir fermingarfræðslu veturinn 2013-2014 er hafin. Dagskrá fermingarstarfanna er á heimasíðunni undir flipanum Fermingarfræðsla. Skráning fer einnig fram hér á heimasíðunni.
Ástjarnarsöfnuður fær kirkjulóð
Það var mikil hátíð í Ástjarnarkirkju 22. apríl sl. þegar biskup Íslands vísiteraði Ástjarnarsöfnuð. Við það tækifæri færði bæjarstjóri Hafnarfjarðar Guðrún Ágústa Guðmundsdóttir söfnuðinum höfðinglega gjöf sem var lóð undir væntanlega kirkjubyggingu. Eru henni og bæjarstjórninni hér með færðar innilegar þakkir! Sjá nánar um það hér. Myndir frá vísitasíunni. Fjarðarpósturinn greinir einnig frá á bls. 22.
Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 21. apríl kl. 11.00
Barnakór Ástjarnarkirkju leiðir sönginn í messunni ásamt Helgu Þórdísi organista. Sr. Kjartan Jónson stýrir stundinni. Sunnudagaskólinn er með hæfileikadag á sama tíma í safnaðarheimili. Allir eru hjartanlega velkomnir, heitt á könnunni og notalegt spjall eftir stundina. Texta dagsins má sjá hér.
Myndir úr hellaferð Kirkjuprakkara 16.4.2013
Velheppnuð ævintýraferð í Leiðarenda. Myndir úr ferðinni eru á Facebook-síðu Ástjarnarkirkju, http://www.facebook.com/media/set/?set=a.533244823380342.1073741828.176365715734923&type=1
Hellaferð næsta þriðjudag, 16.apríl 2013
Kirkjuprakkarar Ástjarnarkirkju ætla að skoða hellinn LEIÐARENDA 16.apríl nk. kl 13:30 Síðast þegar ætlunin var að fara í hellinn (fyrir páska) var hann í klakaböndum og mikið svell á gólfi. Eftir að hafa athugað aðstæður í dag (sunnudag) er ljóst að nú er ævintýrið að fara að gerast.

