Ókeypis íslenskunámskeið fyrir útlendinga hefst 14. sept. kl. 17:30
(English below) Ástjarnarkirkja í Hafnarfirði býður upp á ókeypis íslenskunámskeið fyrir útlendinga, nýbúa og flóttamenn. Kennt verður á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 17:30 – 19:00. Námskeiðið hefst 14. september og stendur í 13 vikur. Staður: Ástjarnarkirkja, Kirkjuvöllum 1, 221 Hafnarfirði. Skráning: kjartan.jonsson@kirkjan.is. Ástjarnar-Church in Hafnarfjörður offers a course in the Icelandic language twice a
Hausthátíð Ástjarnarkirkju 5. september kl. 17:00 – Töfrar
Eins og undanfarin ár hefst starfsveturinn með hausthátíð í kirkjunni. Hún hefst með fjölskylduguðsþjónustu kl. 17:00. Að henni lokinni verða einstakar starfsgreinar safnaðarins kynntar og hægt verður að skrá sig til þátttöku. Þá tekur Einar einstaki töframaður við og sýnir töfrabrögð eins og honum einum er lagið. Síðan halda prestarnir stuttan fund með verðandi
Sumarmessur 2021
Eins og áður, verða allar messur sumarsins fluttar í samstarfi kirknanna í Hafnarfirði, Garðabæ og Álftanesi. Sumarmessurnar eru á sunnudögum klukkan 11:00 í Garðakirkju á Garðaholti.
Hjólreiðamessa 20. júní
Árleg hjólreiðamessa kirknanna í Hafnarfirði og Garðabæ verður haldin sunnudaginn 20. júní. Þátttakendur hittast við kirkjuna kl. 9:30 og syngja einn sálm. Síðan er hjólað að Hafnarfjarðarkirkju og þaðan að Fríkirkjunni og áfram að Víðistaðakirkju. Alls staðar er sunginn einn sálmur. Hjólatúrinn endar í Garðakirkju þar sem gengið verður til guðsþjónustu kl. 11:00. Þar
Námskeið um jákvæða líkamsímynd
Námskeið um jákvæða líkamsímynd verður í Ástjarnarkirkju, föstudaginn 11. júní klukkan 20:00. Fyrirlesari verður Erna Kristín Stefánsdóttir, guðfræðingur og ötul baráttukona fyrir heilbrigðri og jákvæðri líkamsímynd. Skráning á minfegurd.is Ath: Námskeiðinu verður streymt á visir.is
Sumarkirkjan í júní, júlí og ágúst
Engar guðsþjónustur verða í Ástjarnarkirkju í júní, júlí og ágúst. Þess í stað bjóða söfnuðurnir í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi upp á sameiginlegar guðsþjónustur í Garðakirkju kl. 11:00 á hverjum sunnudegi og sunnudagaskóla á sama tíma. Á eftir verður kirkjukaffi með menningarlegri dagskrá.







