Messa og sunnudagaskóli sunnudaginn 20. janúar kl. 11
Messa verður sunnudaginn 20. janúar kl. 11:00 Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed. Sr. Árnór Bjarki Blomsterberg þjónar fyrir altari, Sr. Kjartan Jónsson prédikar. Hressing og samfélag á eftir. Sunnudagaskóli á sama tíma undir stjórn Bjarka Geirdal Guðfinnssonar. Stuttur fundur með aðstandendum fermingarbarna á eftir.
Bænastundir á fimmtudögum kl. 11:00
Bænastundir verða í kirkjunni á fimmtudögum kl. 11:00. Allir eru velkomnir til þátttöku og til að fá fyrirbæn. Einnig er hægt að senda prestum kirkjunnar bænarefni.
Fjölskylduguðsþjónusta 13. janúar kl. 11:00
Starf Ástjarnarkirkju er allt að fara í gang eftir hátíðarnar. Fyrsta guðsþjónustan er fyrir alla fjölskylduna. Bjarki Geirdal Guðfinnsson umsjónarmaður sunnudagaskólans mun annast fræðslu ásamt Arnóri Bjarka Blomsterberg sem verður presturinn í messunni. Kór kirkjunnar syngur undir stjórn Keiths Reed. Hressing og samfélag á eftir.
Aftansöngur á gamlársdag kl. 17:00
Aftansöngur á gamlársdag, 31. desember, verðru kl. 17:00. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Sungið verður hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Hátíðarguðsþjónusta á jóladag kl. 11:00
Hátíðarguðsþjónusta verður á jóladag kl. 11:00 Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed. Prestur verður Arnór Bjarki Blomsterberg. Sungið verður hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar.
Aftansöngur á aðfangadagadagskvöld kl. 18:00
Hefðbundinn aftansöngur verður á aðfangadagskvöld kl. 18:00. Kór Ástjarnarkirkju syngur undir stjórn Keiths Reed. Jóhann Schram Reed syngur einsöng og Áslaug Fjóla Magnúsdóttir og Kolbrún Brown syngja tvísöng. Prestur er sr. Kjartan Jónsson. Sungið verður hátíðartón sr. Bjarna Þorsteinssonar.







