Messað er í Ástjarnarkirkju alla sunnudaga klukkan 17:00.
Í helgihaldi Ástjarnarkirkju er leitast við að hafa jákvætt og þægilegt andrúmsloft. Farið er með bænir, það er sungið, guðspjall lesið, biblíusögur sagðar og hugleiðingar fluttar útfrá boðskap biblíusögunnar eða guðspjallsins.
Við viljum hvetja alla kirkjugesti til að taka virkan þátt í messunum og þá helst með því að taka vel undir í söng, lestri ritningartexta og í bænagjörð. Þau sem vilja taka beinan þátt í helgihaldinu er það hjartanlega velkomið og er þá gott að hafa samband við presta kirkjunnar og láta vita af áhuga.
Eftir hverja messu er boðið upp á heitan kvöldmat (eftir því sem sóttvarnir leyfa) að kostnaðarlausu. Baukur liggur alla jafna frammi þar sem tekið er á móti frjálsum framlögum og er viðmiðið; þau gefa sem geta. Það fjármagn sem safnast í baukinn er nýtt til kaupa á inneignarkortum hjá Bónus sem prestar Ástjarnarkirkju geta gefið efnalitlu fólki sem leitar til kirkjunnar eftir mataraðstoð. Það er skemmst frá því að segja að síðasta vetur gat Ástjarnarkirkja gefið 15 inneignarkort frá Bónus með 10.000 króna inneign á hverju korti, til hjálpar þeim sem til kirkjunnar leituðu. Allt fyrir það fé sem safnaðist í baukinn frá kirkjugestum í tengslum við kvöldmáltíðarsamfélagið eftir messu.
Við bjóðum ykkur sannarlega velkomin í Ástjarnarkirkju.