Aftansöngur hefst klukkan 17:00 í Ástjarnarkirkju á aðfangadagskvöld.

Raust syngur undir stjórn Hrafnhildar Blomsterberg og undirspil Karls Olgeirssonar, tónlistarstjóra Ástjarnarkirkju. Séra Nói messar og Eva Lín Traustadóttir les jólaguðspjallið.

Stórhátíðartón Bjarna Þorsteinssonar verður sungið.

Verið hjartanlega velkomin á hátíðlega og góða stund ❤️