Loading...

Dagskrá fermingarfræðslu

Hér koma dagsetningar annars vegar fyrir Ástjarnarkirkju (fyrri dagsetning) og hins vegar fyrir Kálfatjarnarkirkju (síðari dagsetning).
Í Ástjarnarkirkju fer fermingarfræðslan fram á þriðjudögum klukkan 16:30 en í Kálfatjarnarkirkju (Vogum) fer fermingarfræðslan fram á fimmtudögum klukkan 17:00.

Eftirfarandi dagskrá er sett fram með fyrirvara um breytingar:

2. & 4. september: Við kynnumst hverju öðru og starfinu í kirkjunni.

16. & 18. september: Náungakærleikur. Biblíusaga: Miskunnsami samverjinn.

7. & 9. október: Gullna reglan og góði hirðirinn. „Allt sem þér viljið að annað fólk gjöri yður, það skuluð þér og þeim gjöra“ – Matt 7.12.

28. & 30. október: Kynning á Hjálparstarfi Kirkjunnar og árlegri fjáröflun fermingarbarna fyrir vatnsbrunnum í Afríku.

4. & 6. nóvember: Fjáröflun fermingarbarna fyrir vatnsbrunnum í Afríku. Í lok fjáröflunar hittast fermingarbörn í pizzuveislu í kirkjunni (Ástjarnarkirkja) eða í Álfagerði (Kálfatjarnarkirkja).

18. & 20. nóvember: Biblíusaga: Týndi sonurinn. Við hlustum á frásögn Magdalenu Sigurðardóttur, hvernig hún missti fótanna í lífinu en náði sér aftur á strik með hjálp trúarinnar.

Aðventu- og jólafrí frá fermingarfræðslu en fermingarbörn Ástjarnarkirkju mæta á jólaball 14. desember klukkan 17:00 og fermingarbörn Kálfatjarnarkirkju mæta á aðventustund í Álfagerði 7. desember klukkan 14:00

20. & 22. janúar: Einelti. Biblíusaga: Jósef og bræður hans.

3. & 5. febrúar: Einelti: Persónuleg frásögn.

17. & 19. febrúar: Altarisgangan, messan & messuklæðin.

3. & 5. mars: Undirbúningur fyrir fermingar í Ástjarnarkirkju og Kálfatjarnarkirkju

Fyrir fermingar:

5. mars kl. 16:00 (Ástjarnarkirkja): Fermingaræfing og mátun fermingarkyrtla fyrir fermingarbörn sem fermast 8. mars (alger skyldumæting).

8.mars (Ástjarnarkirkja): Ferming í Ástjarnarkirkju klukkan 11:00. Fermingarbörn mæta í kirkju ekki síðar en klukkan 10:15.

12. mars kl. 16:00 (Ástjarnarkirkja): Fermingaræfing og mátun fermingarkyrtla fyrir fermingarbörn sem fermast 15. mars (alger skyldumæting).

15. mars (Ástjarnarkirkja): Ferming í Ástjarnarkirkju klukkan 11:00. Fermingarbörn mæta í kirkju ekki síðar en klukkan 10:15.

—————————————————————————————————————————————————————————————————-

19. mars kl. 16:00 (Kálfatjarnarkirkja): Fermingaræfing og mátun fermingarkyrtla fyrir fermingarbörn sem fermast 22. mars (alger skyldumæting).

22. mars (Kálfatjarnarkirkja): Ferming í Kálfatjarnarkirkju klukkan 11:00. Fermingarbörn mæta í þjónustuhús við hliðina á kirkjunni ekki síðar en kl. 10:15.

26. mars kl. 16:00 (Kálfatjarnarkirkja): Fermingaræfing og mátun fermingarkyrtla fyrir fermingarbörn sem fermast 29. mars (alger skyldumæting).

29. mars (Kálfatjarnarkirkja): Ferming í Kálfatjarnarkirkju klukkan 11:00. Fermingarbörn mæta í þjónustuhús við hliðina á kirkjunni ekki síðar en kl. 10:15.

—————————————————————————————————————————————————————————————————————————–

13.- 14. nóvember (fimmtudagur til föstudags) verður fermingarferð í Vatnaskóg. Foreldrar verða að sækja um leyfi úr skóla fyrir börnin eftir hádegi á fimmtudegi og á föstudeginum.

Umsjón með fermingarstarfinu hafa prestar Tjarnaprestakalls, sr. Arnór Bjarki (Nói) & sr. Bolli Pétur.

Ef frekari upplýsinga er óskað, vinsamlegast sendið tölvupóst á arnor@astjarnarkirkja.is eða bolli@astjarnarkirkja.is