Bleik messa verður í Ástjarnarkirkju sunnudaginn 15. október kl. 17:00. Sr. Bolli Pétur Bollason þjónar. Hjónin Karl Olgeirsson og Sigga Eyrún Friðriksdóttir sjá um tónlistina. Reynsluræðu flytur Sólveig Ása Tryggvadóttir sem hefur kynnst sjúkdómnum á eigin skinni. Í messunni verður nýr flygill formlega tekinn í notkun. Að lokinni messu verður boðið upp á veglegar kaffiveitingar.